BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
METHOD:PUBLISH
CALSCALE:GREGORIAN
PRODID:-//WordPress - MECv5.1.0//EN
X-WR-CALNAME:WordPress
X-ORIGINAL-URL:https://svth.is/
BEGIN:VEVENT
UID:MEC-c2a51f28f7e17c648db03e7caca038de@svth.is
DTSTART:20220330T083000Z
DTEND:20220330T093000Z
DTSTAMP:20220216T114400Z
CREATED:20220216
LAST-MODIFIED:20220322
SUMMARY:Fjármagn til fyrirtækja – eitthvað fyrir þitt fyrirtæki?
DESCRIPTION:Ertu að missa af fjármagni til að þjálfa upp starfsfólkið þitt?
Miðvikudaginn 30.mars n.k. ætlar Selma Kristjánsdóttir, framkvæmdastjóri Starfsmenntasjóðs verslunar- og skrifstofufólks (SVS) að gefa okkur innsýn inní þær leiðir sem fyrirtækið þitt getur nýtt sér til að stuðla að hæfniaukningu starfsfólksins þíns.
Efnistök fyrirlestrar:

– Hvað er SVS og hvernig virkar þetta allt saman?
– Fyrir hverju geta fyrirtæki sótt um styrki til SVS?
– Kynntar verða leiðir fyrirtækja til stuðnings við frekari hæfniaukningu starfsfólks, stjórnenda og styrkveitingar því tengdu.
– Farið verður yfir hvernig ferlið virkar í heild sinni.


Er fyrirtækið þitt með á nótunum varðandi styrkveitingar sjóðsins eða eruð þið að missa af lestinni?
Fyrirlesari:
Selma Kristjánsdóttir er framkvæmdastjóri Starfsmenntasjóðs verslunar- og skrifstofufólks og fagstjóri starfsmenntamála hjá VR. Hún lauk meistaragráðu (M.ed) í fræðslustarfi með fullorðnum – Mannauðsþróun og Fjölmenningu árið 2010 og Verkefnastjórnun og leiðtogaþjálfun frá EHÍ 2019.
Frá árinu 2014 hefur Selma starfað á vettvangi starfsmenntamála hjá Starfsmenntasjóði verslunar- og skrifstofufólks og VR. Þar hefur hún tekið þátt í og leitt fjölbreytt verkefni sem kallað hafa á frekari þróun, breytingar og umbætur í starfsmenntaumhverfi einstaklinga og fyrirtækja á landsvísu.
Selma var meðal annars fulltrúi í stýrihópi Áttarinnar, vefgátt fyrirtækja til styrkumsókna í starfsmenntasjóði á almenna markaðinum, sem sett var á laggirnar 2014 og heldur í dag utan um þjónustu Áttarinnar fyrir hönd samstarfssjóða.
ATH!
Viðburðurinn verður haldinn í beinni á Zoom.
Viðburðurinn er einungis í boði fyrir félagsfólk SVÞ.
 
URL:https://svth.is/vidburdir/fjarmagn-til-fyrirtaekja-eitthvad-fyrir-thitt-fyrirtaeki/
ORGANIZER;CN=SVÞ - Samtök verslunar og þjónustu:MAILTO:svth@svth.is
CATEGORIES:Fræðsla,Fyrirlestur,Verslun,Þjónusta
LOCATION:Þátttakendur fá senda vefslóð rétt fyrir viðburðinn
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://svth.is/wp-content/uploads/2022/02/SVS-Styrkir-vefur-1200-x-750-px-1.png
END:VEVENT
END:VCALENDAR