BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
METHOD:PUBLISH
CALSCALE:GREGORIAN
PRODID:-//WordPress - MECv7.35.1//EN
X-ORIGINAL-URL:https://svth.is/
X-WR-CALNAME:SVÞ - Samtök verslunar og þjónustu
X-WR-CALDESC:Saman erum við sterkari!
X-WR-TIMEZONE:UTC
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
X-LIC-LOCATION:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20260824T015905
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
X-MS-OLK-FORCEINSPECTOROPEN:TRUE
BEGIN:VEVENT
CLASS:PUBLIC
UID:MEC-6ecee9c863a73e2c3ba55b5fc99b1fed@svth.is
DTSTART;TZID=UTC:20221109T083000
DTEND;TZID=UTC:20221109T093000
DTSTAMP:20221025T110513Z
CREATED:20221025
LAST-MODIFIED:20221108
PRIORITY:5
SEQUENCE:0
TRANSP:OPAQUE
SUMMARY:Hvernig eru íslensk fyrirtæki að ná hámarks árangri með starfsmannafræðslu?
DESCRIPTION:Samkvæmt nýjustu skýrslu EuroCommerce og McKinsey stendur verslun og þjónusta frammi fyrir einni stærstu áskoun seinni tíma, þegar kemur að sí-og endurmenntun starfsfólks á næstu árum.\nMiðvikudaginn, 9.nóvember n.k. fáum við Guðmund Arnar Guðmundsson, framkvæmdastjóra og annar eigandi Akademias að deila með okkur árangursríkum leiðum til að starfsmannafræðsla nái hámarks árangri.\nAllir vinnustaðir verða að búa til lærdómsmenningu og allt starfsfólk verður stöðugt að styrkja og bæta við sig færni og þekkingu. Að skipuleggja fræðslustarf er hins vegar tímafrekt, flókið og dýrt. Stjórnendur kvarta yfir áhugaleysi starfsmanna og starfsfólk kallar á sama tíma eftir aukinni fræðslu. Í ofanálag vita fáir hvort fræðslustarfið sé í raun að skila ábata.\nHvernig breytum við stöðunni og náum betri árangri?\nGuðmundur Arnar, framkvæmdastjóri Akademias, mun í fyrirlestrinum deila reynslu Akademias og aðferðum sem allir vinnustaðir geta tileinkað sér svo lærdómur verði hluti af menningu og starfsfólk finni innri hvata til að læra. Ennfremur mun hann fjalla um hvernig vendinám (e. Flipped learning) getur gert starfsmannafræðslu bæði hagkvæmari og árangursríkari með því að styðjast við rafrænar lausnir í bland við hefðbundnari kennslu.\nUm fyrirlesarann:\nGuðmundur Arnar Guðmundsson er framkvæmdastjóri og annar eigandi Akademias. ( https://akademias.is )\nEnnfremur er hann í eigendahóp Hoobla og situr í stjórn félagsins. Guðmundur hefur starfað sem markaðsstjóri Íslandsbanka, Nova og WOW air en hann sat jafnframt í framkvæmdastjórn félaganna. Ennfremur var hann markaðsstjóri Icelandair í Bretlandi og vörumerkjastjóri Icelandair á Íslandi.\nGuðmundur hefur kennt markaðsfræði og vörumerkjastjórnun við Háskólann í Reykjavík ásamt því að vera reglulegur gestafyrirlesari í öllum háskólum landsins. Guðmundur er hagfræðingur frá Acadia University í Kanada og með MBA frá Háskóla Íslands, auk þess að hafa sótt stjórnendanám, þ. á m. við Harvard Business School og IESE. Hann hefur verið mentor í Startup Reykjavík og Startup Tourism, dómari í Gullegginu og markaðsráðgjafi fyrir fjölda fyrirtækja, af öllum stærðum og í mörgum ólíkum atvinnugeirum.\nÞetta verður án efa áhugaverður fyrirlestur í beinni á Zoom.\nATH! Viðburðurinn er einungis í boði fyrir félagsfólk SVÞ\nSmelltu hér ( https://svth.is/adild/ ) til að fá aðild.\nSKRÁNING NAUÐSYNLEG!\n
URL:https://svth.is/vidburdir/hamarks-arangur-starfsmannafraedslu/
ORGANIZER;CN=SVÞ - Samtök verslunar og þjónustu:MAILTO:svth@svth.is
LOCATION:Þátttakendur fá senda vefslóð rétt fyrir viðburðinn
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://svth.is/wp-content/uploads/2022/10/1.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR
