BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
METHOD:PUBLISH
CALSCALE:GREGORIAN
PRODID:-//WordPress - MECv7.35.1//EN
X-ORIGINAL-URL:https://svth.is/
X-WR-CALNAME:SVÞ - Samtök verslunar og þjónustu
X-WR-CALDESC:Saman erum við sterkari!
X-WR-TIMEZONE:UTC
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
X-LIC-LOCATION:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20261024T174819
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
X-MS-OLK-FORCEINSPECTOROPEN:TRUE
BEGIN:VEVENT
CLASS:PUBLIC
UID:MEC-5c7556b1a07edd1bd22a23f5bc30284d@svth.is
DTSTART;TZID=UTC:20230214T090000
DTEND;TZID=UTC:20230214T103000
DTSTAMP:20230131T113244Z
CREATED:20230131
LAST-MODIFIED:20230209
PRIORITY:5
SEQUENCE:0
TRANSP:OPAQUE
SUMMARY:Menntadagur atvinnulífsins | Færniþörf á vinnumarkaði
DESCRIPTION:Menntadagur atvinnulífsins hefur fest sig í sessi sem árlegur viðburður þar sem menntamál eru í brennidepli. Fundurinn í ár ber yfirskriftina Færniþörf á vinnumarkaði og er haldinn í Hörpu þriðjudaginn 14. febrúar nk. kl. 09:00 – 10:30.\nÁ fundinum greinum við eftirspurn eftir vinnuafli þvert á atvinnugreinar í því augnamiði að skilgreina hvaða aðgerðir eru nauðsynlegar svo vinnuaflsskortur, hvort sem um er að ræða hæfni og færni eða einfaldlega í fjölda vinnandi handa, verði ekki til þess að vöxtur í atvinnu- og efnahagslífi verði minni en ella hefði orðið.\nAðgerðir í mennta- og fræðslumálum er varða námsframboð, breytingar varðandi dvalar- og atvinnuleyfi erlends starfsfólks og öðru sem aukið gæti sveigjanleika á íslenskum vinnumarkaði gagnast best ef ákvörðunin er byggð á áreiðanlegum gögnum. Marktæk spá um færniþörf er þar lykilatriði.\n \n\n\n\nFjölbreytt dagskrá:\nMeðal þeirra sem koma fram:\n– Halldór Benjamíns Þorbergsson, framkvæmdastjóri SA kynnir niðurstöður könnunar og greiningu á færniþörf á vinnumarkaði\n– Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra\n– Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra\nFjöldi atvinnurekenda og mannauðsstjóra þvert á atvinnugreinar tjáir sig um færniþörf síns geira og framtíð menntamála á Íslandi.\nForseti Íslands, Guðni Th. Jóhannsson, afhendir loks menntaverðlaun atvinnulífsins venju samkvæmt þeim fyrirtækjum sem hafa staðið sig vel á sviði fræðslu- og menntamála.\nVerðlaun eru sem fyrr veitt í tveimur flokkum. Menntafyrirtæki ársins er valið og menntasproti ársins útnefndur, en fyrirtæki sem tilnefnd eru verða að uppfylla ákveðin viðmið sem fara fyrir óháða valnefnd.\nMenntadagur atvinnulífsins er samstarfsverkefni Samorku , Samtaka ferðaþjónustunnar , Samtaka fjármálafyrirtækja , Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi , Samtaka iðnaðarins , Samtaka verslunar og þjónustu og Samtaka atvinnulífsins.\nSKRÁNING NAUÐSYNLEG!\nSMELLTU HÉR!  ( https://www.sa.is/starfsemin/vidburdir/6184037122213 )\n
URL:https://svth.is/vidburdir/menntadagur-atvinnulifsins-faernithorf-a-vinnumarkadi/
ORGANIZER;CN=SA og aðildarsamtök:MAILTO:
CATEGORIES:Fræðsla,Ráðstefna
LOCATION:Reykjavík
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://svth.is/wp-content/uploads/2023/01/Email_Banner.png
END:VEVENT
END:VCALENDAR
