BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
METHOD:PUBLISH
CALSCALE:GREGORIAN
PRODID:-//WordPress - MECv7.35.1//EN
X-ORIGINAL-URL:https://svth.is/
X-WR-CALNAME:SVÞ - Samtök verslunar og þjónustu
X-WR-CALDESC:Saman erum við sterkari!
X-WR-TIMEZONE:UTC
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
X-LIC-LOCATION:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20260930T204543
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
X-MS-OLK-FORCEINSPECTOROPEN:TRUE
BEGIN:VEVENT
CLASS:PUBLIC
UID:MEC-dc826746e1b7919b6275ea3f14c5e1bd@svth.is
DTSTART;TZID=UTC:20260312T110000
DTEND;TZID=UTC:20260312T120000
DTSTAMP:20260216T144822Z
CREATED:20260216
LAST-MODIFIED:20260216
PRIORITY:5
SEQUENCE:0
TRANSP:OPAQUE
SUMMARY:Aðalfundur SVÞ 2026
DESCRIPTION:DAGSKRÁ AÐALFUNDAR SVÞ – SAMTAKA VERSLUNAR OG ÞJÓNUSTU\nTil aðildarfyrirtækja SVÞ – Samtaka verslunar og þjónustu\nBOÐUN AÐALFUNDAR SVÞ – SAMTAKA VERSLUNAR OG ÞJÓNUSTU\nMeð bréfi þessu er boðað til aðalfundar SVÞ – Samtaka verslunar og þjónustu hinn 12. mars 2026 kl. 11:00 á Parliament Hotel Reykjavík, Gamli Kvennó – Blái salur 2. hæð, Thorvaldsen stræti 2–6, 101 Reykjavík.\nDagskrá fundarins er eftirfarandi:\n\nRæða formanns SVÞ\nSkýrsla stjórnar SVÞ fyrir liðið starfsár\nReikningar SVÞ fyrir liðið reikningsár\nLýst kosningu meðstjórnenda í stjórn SVÞ\nLýst kosningu í fulltrúaráð Samtaka atvinnulífsins\nKosning löggilts endurskoðanda SVÞ\nBreytingar á samþykktum SVÞ\nUmræður og atkvæðagreiðsla um önnur mál\n\nNánar um einstaka dagskrárliði:\nUm 2. Dagskrárlið\nSkýrsla stjórnar SVÞ verður gerð aðgengileg á vefsvæði SVÞ fyrir fundinn. Á fundinum verður gerð grein fyrir helstu atriðum skýrslunnar.\nUm 3. Dagskrárlið\nReikningar SVÞ fyrir reikningsárið 2025 munu liggja fyrir á skrifstofu SVÞ aðildarfyrirtækjum til skoðunar eigi síðar en frá með 4. mars 2026. Á fundinum verður gerð grein fyrir efni þeirra.\nUm 4. og 5. Dagskrárliði\nTil samræmis við ákvæði 2. málsl. 2. mgr. 14. gr. sbr. 2. mgr. 15. gr. samþykkta SVÞ skal kjósa þrjá meðstjórnendur til tveggja ára á aðalfundi SVÞ 2026, þ.e. kjörtímabilið milli aðalfunda 2026 og 2028.\nKjörnefnd SVÞ 2026 yfirfer framkomin framboð til stjórnar SVÞ og fulltrúaráðs Samtaka atvinnulífsins.\nFramboðsfrestur rennur út 18. febrúar 2026. Berist nefndinni fleiri en þrjú framboð til stjórnar SVÞ eða fleiri framboð til fulltrúaráðs Samtaka atvinnulífsins en sem nemur fulltrúasætum SVÞ er þess vænst að kjörgögn verði send aðildarfyrirtækjum 19. febrúar 2026.\nKosningarnar verða rafrænar, kjörstjórn mun tilkynna um upphafs -og lokatíma með sérstakri tilkynningu.\nUm 7. Dagskrárlið\nStjórn SVÞ – Samtaka verslunar og þjónustu leggur til eftirfarandi breytingu á samþykktum SVÞ, frá 26. maí 1999, með síðari breytingum:\n\nÍ stað fjárhæðanna „kr. 25.000“ og „kr. 1.600.000“ í 9. gr. kemur: 30.000 kr.; og: 1.700.000 kr.\nÁ eftir 2. málsl. 2. mgr. 9. gr. kemur nýr málsliður, svohljóðandi: Fjárhæð lágmarksárgjalds og hámarksárgjalds skal hækka um 2,5% hinn 1. apríl ár hvert, í fyrsta sinn hinn 1. apríl 2027. Hækkun hvers árs skal koma til hækkunar á þeim hlutum árgjalds sem ekki hafa komið til innheimtu, sbr. 10. gr., á þeim degi. Stjórn SVÞ getur þó ákveðið að árleg breyting verði önnur en 2,5%, bæði til hækkunar eða lækkunar, ef sérstakar aðstæður gefa tilefni til.\n\nVirðingarfyllst,\nf.h. stjórnar SVÞ – Samtaka verslunar og þjónustu\nAuður Daníelsdóttir\nFormaður SVÞ\n__________\nFundarboð: AÐALFUNDARBOÐ SVÞ 2026 — ( https://svth.is/wp-content/uploads/2026/02/ADALFUNDARBOD-SVTH-2026-1-1.pdf )\nÍ framhaldi af aðalfundi SVÞ verður UPPBROT 2026 – Ráðstefna SVÞ.\n
URL:https://svth.is/vidburdir/adalfundur-svth-2026/
ORGANIZER;CN=SVÞ - Samtök verslunar og þjónustu:MAILTO:svth@svth.is
CATEGORIES:Félagsfundur,Verslun,Þjónusta
LOCATION:Thorvaldsenstræti 2
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://svth.is/wp-content/uploads/2026/02/Adalfundur-SVTH-2026.png
END:VEVENT
END:VCALENDAR
