BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
METHOD:PUBLISH
CALSCALE:GREGORIAN
PRODID:-//WordPress - MECv7.35.1//EN
X-ORIGINAL-URL:https://svth.is/
X-WR-CALNAME:SVÞ - Samtök verslunar og þjónustu
X-WR-CALDESC:Saman erum við sterkari!
X-WR-TIMEZONE:UTC
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
X-LIC-LOCATION:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20261021T134924
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
X-MS-OLK-FORCEINSPECTOROPEN:TRUE
BEGIN:VEVENT
CLASS:PUBLIC
UID:MEC-fd605345abc18248f2fb95c3f4e32707@svth.is
DTSTART;TZID=UTC:20261027T130000
DTEND;TZID=UTC:20261027T151500
DTSTAMP:20261014T142209Z
CREATED:20261014
LAST-MODIFIED:20261021
PRIORITY:5
SEQUENCE:2
TRANSP:OPAQUE
SUMMARY:Umhverfisdagur atvinnulífsins 2026
DESCRIPTION:Umhverfisdagur atvinnulífsins 2026 verður haldinn í ellefta sinn þriðjudaginn 27. október undir yfirskriftinni Sérstaða Íslands. \nFundurinn fer fram á Hótel Reykjavik Grand og stendur yfir frá kl. 13:00 – 15:15.\nHúsið opnar kl. 12:30.\nOpnunarávarp\nBjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins\nPallborðsumræður\nFrá Íslandi til Brussel – sérstaða, hagsmunir og áhrif\nAfhending Umhverfisverðlauna atvinnulífsins\nÞrjú fyrirtæki sem skara fram úr í tilnefningum verða heiðruð fyrir góðan árangur í umhverfismálum og Umhverfisfyrirtæki ársins 2026 verðlaunað á deginum. Frestur til að tilnefna til Umhverfisverðlauna atvinnulífsins er liðinn.\nStutt kaffihlé\nMálstofur – velja þarf málstofu við skráningu\n1. Sérstaða Íslands í ETS-kerfinu\nETS-kerfið er hluti af sameiginlegu evrópsku regluverki á sviði loftslagsmála. Á málstofunni verður fjallað um mikilvægi þess að áhrif og framkvæmd hins sameiginlega regluverks taki mið af íslenskum aðstæðum á borð við landfræðilega legu, fámenni og mikilvægi flugs og sjóflutninga.\nSjónum verður beint að þeirri vinnu sem hefur farið fram við að koma sérstöðu Íslands á framfæri fyrir flug og sjóflutninga og tryggja að framkvæmd kerfisins taki mið af aðstæðum hér á landi og samkeppnisstöðu íslensks atvinnulífs. Jafnframt verður fjallað um mikilvægi áframhaldandi hagsmunagæslu og eftirfylgni, bæði við þróun regluverksins og framkvæmd þess hér á landi.\n2. PPWR – innleiðing umbúðaregluverks ESB í íslensku samhengi\nNý reglugerð ESB um umbúðir og umbúðaúrgang (PPWR) mun hafa víðtæk áhrif á atvinnulíf í Evrópu. En eru áhrifin þau sömu á Íslandi?\nÁ málstofunni verður fjallað um áhrif PPWR á íslenskt atvinnulíf, meðal annars smásölu, innflutning og útflutning, með sérstakri áherslu á þær áskoranir sem kunna að felast í sérstöðu Íslands. Einnig verður rætt hvernig íslenskum hagsmunum og sjónarmiðum hefur verið komið á framfæri við mótun regluverksins í Evrópu.\n3. Íslensk sérstaða í orkumálum\nAðgengi að grænni og samkeppnishæfri orku hefur lengi verið ein af sérstöðum Íslands og skapað grundvöll fyrir orkusækinn iðnað. Nú eru miklar breytingar að verða á orku- og iðnaðarstefnu Evrópu sem geta haft áhrif á samkeppnisstöðu Íslands.\nFjallað verður um þessa þróun og snert meðal annars á CBAM, breyttu orkuregluverki og aðgerðum ESB til að styrkja evrópskan iðnað. Hvaða áhrif hefur þróunin á íslenskt atvinnulíf? Verður íslensk græn orka verðmætari og hvernig getur Ísland nýtt sérstöðu sína í breyttu evrópsku landslagi?\nAð dagskrá lokinni verður boðið upp á léttar veitingar og tengslamyndun.\nEndanleg dagskrá verður auglýst innan tíðar!\nDagurinn sameiginlegt verkefni SA, SAF, Samorku, SFF, SFS, SI og SVÞ.\n
URL:https://svth.is/umhverfisdagur-atvinnulifsins-2026
ORGANIZER;CN=SA og aðildarsamtök:MAILTO:
CATEGORIES:Ráðstefna,Umhverfismál,Verslun,Þjónusta
LOCATION:Sigtún 28, 105 Reykjavík
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://svth.is/wp-content/uploads/2026/10/SA-Umhverfisdagurinn-OK_1920X1080-2-scaled.png
END:VEVENT
END:VCALENDAR
