Fimm skilaboð OECD til stjórnenda um gervigreind og vinnumarkaðinn

Fimm skilaboð OECD til stjórnenda um gervigreind og vinnumarkaðinn

„Yfir helmingur þeirra smærri fyrirtækja sem hafa ekki tekið upp skapandi gervigreind segir skort á færni vera helstu hindrunina, samkvæmt OECD.“

Fyrirtæki sem þjálfa starfsfólk ná meiri árangri með gervigreind

Skortur á færni er einn stærsti þröskuldurinn í innleiðingu gervigreindar hjá fyrirtækjum. Á sama tíma eykst eftirspurn eftir starfsfólki sem getur nýtt stafræn verkfæri, unnið með gögn og nýtt gervigreind í daglegum rekstri. Þetta eru meðal helstu niðurstaðna nýrrar greiningar OECD um gervigreind og færni á vinnumarkaði –> SMELLTU HÉR til að hlaða niður skýrslunni.

OECD bendir á að árangur fyrirtækja af innleiðingu gervigreindar ráðist ekki fyrst og fremst af tækninni sjálfri heldur af getu starfsfólks til að nýta hana. Fyrir fyrirtæki í verslun og þjónustu er þetta mikilvægt samkeppnismál þar sem framleiðni, þjónustugæði og nýsköpun ráðast í auknum mæli af því hvernig gögn og tækni eru nýtt í rekstri.

Fimm skilaboð til stjórnenda

1. Færniskortur er helsta hindrunin

Skortur á réttri þekkingu og færni er ein helsta ástæða þess að fyrirtæki fresta eða hætta við innleiðingu gervigreindar. Sérstaklega eiga lítil og meðalstór fyrirtæki í erfiðleikum með að finna starfsfólk með viðeigandi hæfni. Yfir helmingur þeirra fyrirtækja sem ekki hafa tekið upp skapandi gervigreind telur færniskort vera helstu hindrunina.

Fyrir stjórnendur eru skilaboðin skýr: innleiðing gervigreindar er ekki fyrst og fremst tækniverkefni heldur mannauðsverkefni.

2. Gervigreind eykur eftirspurn eftir hæfara starfsfólki

Þótt gervigreind taki yfir ákveðin verkefni sýna gögn OECD að fyrirtæki sem hafa innleitt tæknina kalla í auknum mæli eftir starfsfólki með meiri menntun og sérhæfðari þekkingu. Í mörgum tilvikum styður tæknin við störf fólks fremur en að leysa þau af hólmi.

Þetta er sérstaklega mikilvægt fyrir þjónustugreinar þar sem verðmætasköpun byggir á þekkingu, samskiptum og getu starfsfólks til að taka upplýstar ákvarðanir.

3. Flestir þurfa ekki að kunna að forrita

OECD bendir á að færri en eitt prósent starfsmanna muni þurfa sérhæfða tæknikunnáttu á sviði gervigreindar. Langflestir þurfa hins vegar að geta nýtt stafræn verkfæri, greint upplýsingar og unnið með gögn.

Samhliða því verða mannlegir styrkleikar áfram mikilvægir, svo sem gagnrýnin hugsun, lausnaleit, sköpunarkraftur og nýsköpun. Fyrirtæki sem einblína eingöngu á tæknisérfræðinga gætu því misst af stærra verkefninu: að efla stafræna hæfni alls starfsfólks.

4. Gervigreind getur mildað áhrif manneklu

Gervigreind getur einnig hjálpað fyrirtækjum að takast á við skort á starfsfólki og reynslu. Nær 40% lítilla og meðalstórra fyrirtækja sem glíma við færnibil telja að skapandi gervigreind hafi hjálpað til við að brúa það. Þá segir um fjórðungur fyrirtækja að tæknin hafi hjálpað þeim að mæta skorti á starfsfólki.

5. Þjálfun skilar árangri

Fyrirtæki sem fjárfesta í þjálfun starfsfólks ná betri árangri af innleiðingu gervigreindar. Starfsfólk sem fær þjálfun á vegum vinnuveitanda er líklegra til að upplifa aukna framleiðni, meiri starfsánægju og jákvæðari áhrif á vinnuumhverfi sitt.

Þjálfun er því ekki aukakostnaður heldur lykilforsenda þess að fjárfestingar í gervigreind skili raunverulegum ávinningi.

Samkeppnisforskot framtíðarinnar

Niðurstöður OECD benda til þess að samkeppnisforskot fyrirtækja á næstu árum muni ekki aðeins ráðast af aðgangi að nýjustu tækni heldur einnig af því hversu vel tekst að byggja upp þekkingu og færni innan fyrirtækjanna.

Fyrir fyrirtæki í verslun og þjónustu felst áskorunin því ekki aðeins í að velja rétt verkfæri heldur einnig í að skapa menningu símenntunar og starfsþróunar sem gerir starfsfólki kleift að nýta tæknina til fulls. Þar gæti legið stærsti ávinningurinn af gervigreind á komandi árum.

–> Sjá RÆKTUM VITIÐ fyrir leiðir til sí og endurmenntunar.
–> Sjá OECD Skýrsluna AI and skills – what we know so far.

 

UPPTAKA | Breytt Suðurlandsbraut – böl eða blessun fyrir fyrirtækin

UPPTAKA | Breytt Suðurlandsbraut – böl eða blessun fyrir fyrirtækin

SVÞ – Samtök verslunar og þjónustu og FA – Félag atvinnurekenda hélt sameiginlegan morgunverðarfund þann 6. mars sl undir heitinu „Breytt Suðurlandsbraut -böl eða blessun fyrir fyrirtækin?“

Á svæðinu starfa á annað þúsund fyrirtækja með um 5.500 starfsmenn. Fyrirhugaðar framkvæmdir og skipulagsbreytingar geta haft veruleg áhrif á umferð, aðgengi og rekstrarskilyrði verslunar og þjónustu í hverfinu.  Fjölmennt var á fundinn og fundargestir með margar spurningar og ábendingar.

Smelltu — Glærur Breytt Suðurlandsbraut, böl eða blessun fyrir fyrirtækin?

Opnað fyrir tilnefningar til Menntaverðlauna atvinnulífsins 2026

Opnað fyrir tilnefningar til Menntaverðlauna atvinnulífsins 2026

Menntaverðlaun atvinnulífsins verða afhent á Menntadegi atvinnulífsins sem fram fer á Hilton Reykjavík Nordica 11. febrúar 2026. Nú er opið fyrir tilnefningar og eru fyrirtæki hvött til að benda á góð dæmi um öflugt fræðslu- og menntastarf í atvinnulífinu.

Einungis er hægt að tilnefna aðildarfélög innan Samtök atvinnulífsins (SA) og er fyrirtækjum jafnframt heimilt að tilnefna sjálf sig.
Tilnefningarfrestur rennur út föstudaginn 16. janúar 2026.

Verðlaunin eru veitt í tveimur flokkum:

  • Menntafyrirtæki ársins

  • Menntasproti ársins

Menntadagur atvinnulífsins er sameiginlegt verkefni Samtök atvinnulífsins (SA), Samtök iðnaðarins (SI), Samtök verslunar og þjónustu (SVÞ), Samtök ferðaþjónustunnar (SAF), Samtök fjármálafyrirtækja (SFF), Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) og Samorka.

SMELLTU HÉR fyrir nánari upplýsingar.

BS Nám sem styrkir framtíð verslunar og þjónustu

BS Nám sem styrkir framtíð verslunar og þjónustu

Háskólinn á Bifröst hefur opnað fyrir umsóknir í BS-nám í Stjórnun í verslun og þjónustu á vorönn 2026. Námið er sérhannað fyrir þá sem starfa í verslunar- og þjónustugreinum og vilja efla hæfni sína í stjórnunar- og rekstrarhlutverkum innan einnar stærstu atvinnugreinar landsins.

Námið er sveigjanlegt og aðgengilegt — engin skólagjöld, engin mætingaskylda og fyrirlestrar aðgengilegir hvar og hvenær sem er. Þetta gerir þátttakendum kleift að samræma vinnu og nám á eigin forsendum. Umsóknarfrestur er til og með 7. desember – nánari upplýsingar má finna HÉR!

BS-námið í Stjórnun í verslun og þjónustu veitir traustan grunn að stjórnunarstarfi og styður við starfsþróun bæði til hagsbóta fyrir einstaklinginn og fyrirtækið. Samkvæmt nýlegri grein SVÞ starfar fjórði hver Íslendingur í verslun og þjónustu, en samt er algengur misskilningur að störf í greininni séu aðeins byrjunarstörf.


„Raunin er sú að á sviði verslunar og þjónustu fyrirfinnst eitt fjölbreyttasta starfsumhverfi landsins,“ segir Benedikt S. Benediktsson, framkvæmdastjóri SVÞ.

Námstilboðið fellur vel að samstarfsverkefni SVÞ og VR „Ræktum vitið“, sem hvetur fyrirtæki í verslun og þjónustu til sí og endurmenntunar til að efla menntun og hæfni starfsfólks – því mannauðurinn er besta samkeppnisforskot greinarinnar.

Við fylgjum þér frá getnaði til grafar

Við fylgjum þér frá getnaði til grafar

Ég veit ekki hvort þú veist það en það eru allar líkur á að í dag, í gær eða a.m.k. í vikunni eigir þú viðskipti við fyrirtæki sem er í SVÞ – Samtökum verslunar og þjónustu. Fyrirtækin stuðla að frjósemi, reka leikskóla, selja matvörur, föt og byggingarvörur, miðla líftryggingum, leigja fasteignir, selja og gera við bíla, reka kvikmyndahús og veita útfararþjónustu – og allt þar á milli.

SVÞ eru málsvari um 430 fyrirtækja sem fylgja þér frá getnaði til grafar.

Þetta er ekki aðeins áhugaverð staðreynd því einkennandi greinar verslunar og þjónustu hafa mikil áhrif á samfélagið:

  • Um 19% verðmætasköpunar þjóðarbúsins má rekja til verslunar og þjónustu en fyrir þá fjárhæð mætti kaupa hátt í 280 milljónir brauðosta af dýrari gerðinni.
  • Um 40% einkaneyslunnar fer um hendur greinanna en fyrir þá fjárhæð mætti kaupa um 130 þúsund bíla af gerðinni Suzuki Vitara.
  • Um 50 þúsund manns starfa í greinunum en með þeim fjölda væri unnt að kjaftfylla Laugardalsvöllinn rúmlega fimm sinnum.
  • Árlega skila greinarnar 200 milljörðum króna í opinber gjöld sem er svipað og það kostar að mennta hátt í 70 þúsund grunnskólabörn.

Án fyrirtækjanna væri lítið um útrás annarra atvinnugreina. Hvar væri sjávarútvegurinn án eldsneytis og orku, varahluta og vöruflutnings? Hvernig stæði hugverkasköpunin án tæknibúnaðar? Hvernig ætli starfsmönnum í iðnaði liði án vinnufatnaðar? Væru allir ferðamennirnir enn í Reykjanesbæ ef engir væru bílarnir? Með hverju á að hræra í pottunum ef engar eru sleifarnar?

Það er hlutverk SVÞ að minna á þetta samhengi – og skapa vettvang þar sem fólk stillir saman strengi, ræðir áskoranir og horfir til framtíðar. Hinn 7. október næstkomandi fara fram Haustréttir SVÞ – leiðtogafundur verslunar og þjónustu.

Frá getnaði til grafar og inn í framtíðina. SVÞ standa vörð um hagsmuni sem snerta alla landsmenn, á hverjum einasta degi.

Höfundur er framkvæmdastjóri SVÞ – Samtaka verslunar og þjónustu

 Grein á Vísi Við fylgjum þér frá getnaði til grafar – Vísir