FRÆÐSLA
SVÞ leggur áherslu á að efla menntun sem tengist verslun og þjónustu. Í því felst að samtökin láta sig varða og taka þátt í mótun grunn- og framhaldsmenntunar fyrir starfsgreinarnar að teknu tilliti til þarfa verslunar- og þjónustugreina. Auk þess er lögð áhersla á að styðja við endurmenntun og starfsmenntun fólks sem þegar er starfandi í verslunar- og þjónustufyrirtækjum.
SVÞ móta stefnu í verslunar- og þjónustumenntun ásamt yfirvöldum menntamála, launþegasamtökum og öðrum félagasamtökum eftir því sem við á.
SVÞ taka þátt samstarfi við önnur atvinnurekendasamtök innana vébanda Samtaka atvinnulífsins á sviði fræðslu- og menntamála og eiga sæti í nefndum og ráðum á vegum fræðsluyfirvalda. Fulltrú SVÞ situr í stjórn SVS Starfsmenntasjóðs verslunar og skrifstofufólks link á sjóðinn.
Stafræn viðskiptalína er ný námslína á framhaldsskólastigi sem SVÞ átti frumkvæði að koma á laggirnar í samstarfi við Verzlunarskóla Íslands, fulltrúa atvinnulífsins og SVS. Verið er að vinna að námsleiðinni Fagnámi verslunar í samvinnu SVÞ, SVS og Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins. Hluti verkefnisins er þróun raunfærnimats á móti námsbrautinni. Stefnt er að því að hefja námið í janúar 2020.
Að auki standa samtökin að metnaðarfullri fræðslu- og viðburðardagskrá fyrir félagsmenn sína með því markmiði að hjálpa þeim að fylgjast með því sem er að gerast innan verslunar og þjónustu bæði hérlendis og erlendis, og auka samkeppnishæfni þeirra.
FRÆÐSLUVIÐBURÐIR Á NÆSTUNNI
Bestu trikkin í bókinni – masteraðu markaðssetninguna með gervigreindinni
Ertu að skilja peningana eftir á borðinu? – Stafræn markaðsetning fyrir stjórnendur fyrirtækja
Viðburður fyrir félagsfólk SVÞ Ertu að skilja peningana eftir á borðinu? – Stafræn markaðsetning fyrir stjórnendur fyrirtækja Samkvæmt nýlegri könnun Prósents telja íslenskir stjórnendur netöryggi og stafræna markaðssetningu þá tvo þætti sem hérlend fyrirtæki vantar...
Sérsniðið námskeið: Aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka fyrir bifreiðaumboð og bifreiðasala
Sérsniðið námskeið: Aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka Föstudaginn 29.apríl 2022 fá bifreiðaumboð og bifreiðasalar sérstaka innsýn inní aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka með sérfræðingum KPMG. STAÐUR: Hús atvinnulífsins, Hylur...
Stafræni hæfinisklasinn; þjónusta fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki
Stafræni hæfniklasinn – hvernig nýtist hann litlum og meðalstórum fyrirtækjum Miðvikudaginn 4.maí n.k. fáum við Evu Karen Þórðardóttur, framkvæmdastjóra Stafræna hæfniklasans til að segja okkur frá starfsemi klasans og hvernig hann getur nýst litlum og meðalstórum...
Stafræni hæfnisklasinn með morgunfræðslu 5.apríl n.k.
Leggjum af stað í stafræna vegferð – hverju þarf að huga að? Þriðjudagurinn 5.apríl n.k. kl. 09:00 - 10:00 Dagskrá: Áður en fyrirtæki leggja af stað í sína stafrænu vegferð þarf að huga að ákveðnum þáttum til þess að vera viss um að réttu skrefin séu tekin á réttum...
Hvernig geta fyrirtæki og stofnanir mælt árangur á samfélagslegri ábyrgð?
Hvernig geta fyrirtæki og stofnanir mælt árangur á samfélagslegri ábyrgð? Miðvikudaginn 6.apríl n.k. ætlar Rósbjörg Jónsdóttir fulltrúa SPI á Íslandi að fræða okkur um leiðir til að mæla raunverulegan árangur á samfélagslegri ábyrgð fyrirtækja og stofnana. Rósbjörg...
Aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka
Þann 19. janúar nk. stendur SVÞ fyrir fræðslu til félagsmanna sem eiga í viðskiptum í atvinnuskyni þar sem greitt er með reiðufé, hvort sem viðskiptin fara fram í einni greiðslu eða fleiri sem virðast tengjast hver annarri, að fjárhæð EUR 10,000 eða meira. Námskeiðið...