Site icon SVÞ – Samtök verslunar og þjónustu

Sérsniðið námskeið: Aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka

SVÞ og KPMG boða til sérsniðins námskeiðs fyrir vátryggingamiðlara, aðila sem færa bókhald og eða sinna bókhaldsþjónustu fyrir þriðja aðila.

Námskeiðið miðar að því að kynna fyrir félagsmönnum SVÞ hvaða kröfur lögin gera til framangreindra aðila en þeir falla með beinum hætti undir lög um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka nr. 140/2018.

Farið verður m.a. yfir:

 

Jafnframt mun KPMG leggja fram;

Félagsmönnum gefst færi á að leita til sérfræðinga KPMG í kjölfar fyrirlestra, vakni frekari spurningar eða álitamál.

Um fyrirlesarana:
Björg Anna Kristinsdóttir er lögfræðingur hjá KPMG og hefur sérhæft sig í aðgerðum gegn peningaþvætti og tengdum brotum og málaflokkum. Hún hefur mikla reynslu og þekkingu á málum er tengjast peningaþvætti og hefur komið að fjölmörgum verkefnum sem lúta að hlítni við lög og reglugerðir. Hún ber einnig ábyrgð á málaflokknum hjá KPMG.

Edda Bára Árnadóttir er lögfræðingur sem hefur starfað hjá KPMG frá 2018.  Hún hefur sérhæft sig í virðisaukaskatti en einnig verið mikið í störfum tengdum aðgerðum gegn peningaþvætti og tengdum brotum og málaflokkum.

Dagsetning: Miðvikudagurinn 15.desember 2021
Tími: 08:30 – 10:00
Staður: Hylur, Hús atvinnulífsins, Borgartúni 35, 105 Reykjavík

Fulltrúar bókhaldsstofa og vátrygginamiðlara eru hvattir til að mæta á staðinn en viðburðurinn verður einnig í boði í streymi.

ATHUGIÐ: Einungis í boði fyrir félagsfólk SVÞ

SKRÁNING NAUÐSYNLEG!

 

 

Exit mobile version