Site icon SVÞ – Samtök verslunar og þjónustu

Fræðsla um vinnurétt fyrir stjórnendur Sjálfstæðra skóla

Vinnuréttarfundur SSK og SA

SVÞ – Samtök verslunar og þjónustu, í samstarfi við Samtök atvinnulífsins, bjóða stjórnendum innan Sjálfstæðra skóla til sérsniðinnar fræðslu um vinnurétt.

Lögfræðingarnir Sólveig B. Gunnarsdóttir og Maj-Britt Hjördís Briem frá vinnumarkaðssviði SA fara yfir helstu atriði vinnuréttar sem stjórnendur þurfa að þekkja í daglegu starfi og svara spurningum þátttakenda. Að fræðslunni lokinni verður opið fyrir gagnlegar umræður og reynslumiðlun.

Vinnuréttur er lykilatriði í ábyrgri stjórn og ákvarðanatöku – við hvetjum því alla stjórnendur innan Sjálfstæðra skóla til að nýta þetta tækifæri til að styrkja þekkingu sína og færni.

📅 Dagsetning: 20. nóvember 2025
🕑 Tími: 14:00 – 16:30
📍 Staður: Hús atvinnulífsins, Borgartúni 35 – fundarherbergið Hylur 1.hæð.

Setjið viðburðinn í dagatalið og skráið ykkur til leiks hér.

Exit mobile version