Site icon SVÞ – Samtök verslunar og þjónustu

Veffyrirlestur: Hvað er bannað og hvað má? Bann við afhendingu á burðarpokum úr plasti

Í upphafi árs tók í gildi bann við afhendingu á burðarpokum úr plasti. Bannið er bæði víðtækara og frjálslegra en margir gera sér grein fyrir. Í erindi sínu fer sérfræðingur Umhverfisstofnunnar yfir hvað felst í banninu, hvað sé leyfilegt og hvað ekki og hvaða lausna er hægt að leita. Fjallað verður um hvað plast er, hvað burðarpokar eru og hvað er átt við með afhendingu á sölustað vara.

Fyrirlesari er Dr. Gró Einarsdóttir, sérfræðingur á sviði loftlagsmála og græns samfélags hjá Umhverfisstofnun

Sem sérfræðingur hjá Umhverfisstofnun hefur Gró svarað fyrirspurnum fyrirtækja um bannið á afhendingu á burðarpokum úr plasti og hefur í þeim tilgangi kynnt sér málefnin ítarlega. Gró er einnig doktor í félagssálfræði, og hennar sérsvið snýst um hvernig við aukum líkurnar á því að fólk breyti umhverfistengdri hegðun. Gró er vinsæll fyrirlesari og hefur víðtæka reynslu af því að halda erindi fyrir ólíka hópa.

Umhverfisstofnun sér um upplýsingagjöf og eftirlit með ákvæðunum við banninu á afhendingu á burðarpokum úr plasti.

Skráning fer fram hér fyrir neðan. Vinsamlegast athugið að ekki er hægt að ábyrgjast að hlekkur á viðburðinn berist í tíma ef skráning fer fram innan við klukkustund frá upphafi viðburðarins.

ATHUGIÐ – AF ÓVIÐRÁÐANLEGUM ÁSTÆÐUM HEFUR ÞESSUM VIÐBURÐI VERIÐ FRESTAÐ OG VERÐUR HANN NÚ MIÐVIKUDAGINN 21. APRÍL (í stað 7. apríl) Á SAMA TÍMA.

Exit mobile version