Hvað ef þú gætir séð viðskiptatækifærin áður en þau banka upp á?
Í síbreytilegu rekstrarumhverfi getur það skipt sköpum að hafa réttar upplýsingar á réttum tíma. Með snjallri nýtingu stafrænna gagna og gervigreindar opnast nýir möguleikar fyrir fyrirtæki til að skilja markaðinn betur, greina tækifæri fyrr og taka upplýstari ákvarðanir sem skila árangri.
SVÞ og SAF bjóða félagsfólki á áhugaverðan hádegisfund þar sem Stefán Baxter, framkvæmdastjóri Snjallgagna, kynnir nýja sýn á hvernig fyrirtæki geta nýtt gögn og gervigreind til að styrkja rekstur sinn og samkeppnisstöðu.
Á fundinum verður kynnt Auðvitað!, nýstárlegt gagnatorg á audvitad.snjallgogn.is, sem byggir á upplýsingum um eftirspurnarhvata og markaðsaðstæður. Lausnin er afrakstur þróunarstarfs Snjallgagna undanfarin ár og opnar nýja möguleika á að nýta upplýsingar um markaðinn með hagnýtum hætti.
Stefán mun fara yfir hvernig fyrirtæki geta nýtt þessar upplýsingar til að:
- Greina ný viðskiptatækifæri og bregðast fyrr við breytingum á markaði.
- Taka betri rekstrarákvarðanir með aukinni innsýn í eftirspurn og markaðsaðstæður.
- Bæta nýtingu og auka árangur með markvissari ákvarðanatöku.
Skapa ný verðmæti, bæði á eigin vegum og í samstarfi við önnur fyrirtæki.
Framtíðin býður upp á fleiri möguleika en þú heldur
Á fundinum verður ekki aðeins horft til þess sem tæknin gerir mögulegt í dag, heldur einnig til þeirra tækifæra sem eru að opnast fyrir fyrirtæki sem vilja vera skrefi á undan.
Fyrirtæki sem hafa áhuga á að vera í fararbroddi í hagnýtingu gagna og gervigreindar gætu því haft sérstaka ástæðu til að mæta.
Dagur: Fimmtudaginn 26. nóvember 2026
Tími: Kl. 12:00–13:00
Staður: Hús atvinnulífsins, Borgartúni 35
Nýttu hádegið til að sjá hvaða tækifæri leynast í gögnunum og hvernig þau gætu nýst þínu fyrirtæki.
Athugið! Einungis í boði fyrir félagsfólk innan SVÞ og SAF.

