Spennandi breytingar eru að eiga sér stað á vinnumarkaði sem nauðsynlegt er að allir undirbúi sig fyrir. Sama hvort þú ert atvinnurekandi, stjórnandi, launþegi eða einstaklingur sem vilt nýta sér þessar breytingar á sem bestan hátt og átta þig á hvernig best er að taka þátt á markaðstorgi þekkingar.
Fyrirlesarar: Dr. Árelía Eydís Guðmundsdóttir, dósent við HÍ og Herdís Pála Pálsdóttir, framkvæmdastjóri rekstrarsviðs og mannauðsstjóri hjá Deloitte
Árelía Eydís hefur fjölbreytta reynslu, hefur starfað lengi við HÍ, en einnig setið í fjölmörgum stjórnum, sinnt ráðgjöf, gefið út fræðibækur og skáldsögur.
Herdís Pála hefur fjölbreytta reynslu, hefur lengst af starfað við mannauðsmál og stjórnun en einnig setið í stjórnum, sinnt ráðgjöf, markþjálfun, kennslu og fyrirlestrahaldi.
Saman skrifuðu þær nýlega saman bókina Völundarhús tækifæranna – bylting á vinnumarkaði, giggarar og aukin lífsgæði.