Vinnustaðaskírteini: stafræn lausn fyrir útgáfu og umsýslu
Rafræn kynning á Zoom fyrir aðildarfyrirtæki SVÞ og SAF
SVÞ og SAF bjóða aðildarfyrirtækjum á kynningu á Hver ertu, stafrænni lausn fyrir útgáfu og umsýslu vinnustaðaskírteina ásamt stafrænum heilsufarsyfirlýsingum.
Á kynningunni verður farið yfir:
- -> hvernig fyrirtæki geta á einfaldan hátt gefið út og haldið utan um vinnustaðaskírteini starfsfólks
- -> hvernig starfsfólk getur haft vinnustaðaskírteinin sín í Apple Wallet eða Google Wallet í símanum
- -> hvernig hægt er að sannreyna skírteini og gildistíma með QR-kóða
- -> hvernig fyrirtæki geta hafið notkun á kerfinu og hvaða kostnaður fylgir
Kerfið verður sýnt í framkvæmd og gefinn verður tími fyrir spurningar og svör.
Fyrir hverja?
Kynningin er ætluð öllum aðildarfyrirtækjum SVÞ og SAF sem þurfa að gefa út vinnustaðaskírteini, sérstaklega stjórnendum, mannauðsfulltrúum og öðrum sem sjá um starfsmannahald og vinnustaðaskírteini.
Kynnir: Aron Bjarnason, framkvæmdastjóri Filmís – Hver ertu
Tími og staður
- Dagsetning: miðvikudagur 28. október
- Tími: kl. 09:00 (kynningin tekur 20–30 mínútur, auk tíma fyrir spurningar og svör)
- Staður: Zoom
- Verð: [Frítt fyrir aðildarfyrirtæki SVÞ og SAF]

