Site icon SVÞ – Samtök verslunar og þjónustu

Framtíð verslunar: Þegar gervigreind, traust og kauphegðun breyta leiknum

Örvinnustofa SVÞ

Framtíð verslunar: Þegar gervigreind, traust og kauphegðun breyta leiknum
Hvernig breytist verslun þegar gervigreind verður ráðgjafi og jafnvel innkaupafulltrúi viðskiptavinarins?
Á þessari örvinnustofu SVÞ skoðum við hvernig gervigreind, breytt kauphegðun og auknar kröfur um traust eru að móta verslun og þjónustu. Þátttakendur fá hnitmiðaða innsýn í þróunina, spegla hana inn í eigin rekstur og greina hvaða tækifæri, áhættur og aðgerðir þurfa athygli núna.
Örvinnustofan er ætluð stjórnendum, millistjórnendum og lykilfólki í sölu, markaðsmálum, þjónustu, netverslun, rekstri, gögnum og upplifun viðskiptavina.
Dagsetning: 7. september 2026
Staðsetning: Hús atvinnulífsins, Borgartún 35
Salur: Hylur 1. hæð
Dagskrá:
13:30 | Húsið opnar
Móttaka, kaffi og samtal við aðra þátttakendur.
14:00 | Vinnustofa hefst
Breytt kauphegðun og nýjar væntingar
Farið verður yfir helstu breytingar á kauphegðun, kauprásum og væntingum viðskiptavina um þægindi, hraða, gagnsæi og traust.
Gervigreind sem ráðgjafi viðskiptavinarins
Hvernig hjálpar gervigreind fólki að leita, bera saman og velja? Við skoðum hvaða áhrif það hefur á kaupferðina og sýnileika fyrirtækja, vara og þjónustu.
Frá þróun til eigin rekstrar
Þátttakendur vinna með áhrif þróunarinnar á eigin fyrirtæki og ræða meðal annars:
Samantekt og næstu skref
Hver þátttakandi skilgreinir eina til tvær spurningar eða aðgerðir til að taka áfram í eigin starfsemi.

Vinnustofan er 90 mínútur, auk 10 mínútna hlés.

Leiðbeinandi:
Guðrún Ragnarsdóttir, ráðgjafi og meðeigandi Strategíu, leiðir örvinnustofuna.
Guðrún hefur víðtæka reynslu af stefnumótun, innleiðingu stefnu og stjórnun breytinga hjá íslenskum fyrirtækjum og stofnunum. Hún hefur starfað sem stjórnandi, ráðgjafi og verkefnisstjóri og setið í stjórnum fyrirtækja og opinberra aðila. Guðrún var jafnframt formaður Stjórnvísi á fyrstu árum félagsins.
Í vinnustofunni tengir hún þróun í gervigreind og kauphegðun við stefnumótandi spurningar um viðskiptavini, virði, traust og samkeppnisstöðu.

Þátttökugjald
____________________________________________
Exit mobile version