Framtíð verslunar: Þegar gervigreind, traust og kauphegðun breyta leiknum
Örvinnustofa SVÞ
Framtíð verslunar: Þegar gervigreind, traust og kauphegðun breyta leiknum
Hvernig breytist verslun þegar gervigreind verður ráðgjafi og jafnvel innkaupafulltrúi viðskiptavinarins?
Á þessari örvinnustofu SVÞ skoðum við hvernig gervigreind, breytt kauphegðun og auknar kröfur um traust eru að móta verslun og þjónustu. Þátttakendur fá hnitmiðaða innsýn í þróunina, spegla hana inn í eigin rekstur og greina hvaða tækifæri, áhættur og aðgerðir þurfa athygli núna.
Örvinnustofan er ætluð stjórnendum, millistjórnendum og lykilfólki í sölu, markaðsmálum, þjónustu, netverslun, rekstri, gögnum og upplifun viðskiptavina.
Dagsetning: 7. september 2026
Staðsetning: Hús atvinnulífsins, Borgartún 35
Salur: Hylur 1. hæð
Staðsetning: Hús atvinnulífsins, Borgartún 35
Salur: Hylur 1. hæð
Dagskrá:
13:30 | Húsið opnar
Móttaka, kaffi og samtal við aðra þátttakendur.
Móttaka, kaffi og samtal við aðra þátttakendur.
14:00 | Vinnustofa hefst
Breytt kauphegðun og nýjar væntingar
Farið verður yfir helstu breytingar á kauphegðun, kauprásum og væntingum viðskiptavina um þægindi, hraða, gagnsæi og traust.
Farið verður yfir helstu breytingar á kauphegðun, kauprásum og væntingum viðskiptavina um þægindi, hraða, gagnsæi og traust.
Gervigreind sem ráðgjafi viðskiptavinarins
Hvernig hjálpar gervigreind fólki að leita, bera saman og velja? Við skoðum hvaða áhrif það hefur á kaupferðina og sýnileika fyrirtækja, vara og þjónustu.
Hvernig hjálpar gervigreind fólki að leita, bera saman og velja? Við skoðum hvaða áhrif það hefur á kaupferðina og sýnileika fyrirtækja, vara og þjónustu.
Frá þróun til eigin rekstrar
Þátttakendur vinna með áhrif þróunarinnar á eigin fyrirtæki og ræða meðal annars:
Þátttakendur vinna með áhrif þróunarinnar á eigin fyrirtæki og ræða meðal annars:
- Hvar liggja stærstu tækifærin?
- Hver er áhættan ef brugðist er of seint við?
- Eru vörugögn, verð, umsagnir og skilmálar nægilega skýr og aðgengileg?
- Hvaða þjónustu, ferla, gögn eða hæfni þarf að styrkja?
- Hvernig má nýta gervigreind án þess að veikja traust eða sérstöðu fyrirtækisins?
Samantekt og næstu skref
Hver þátttakandi skilgreinir eina til tvær spurningar eða aðgerðir til að taka áfram í eigin starfsemi.
Hver þátttakandi skilgreinir eina til tvær spurningar eða aðgerðir til að taka áfram í eigin starfsemi.
Vinnustofan er 90 mínútur, auk 10 mínútna hlés.
Leiðbeinandi:
Guðrún Ragnarsdóttir, ráðgjafi og meðeigandi Strategíu, leiðir örvinnustofuna.
Guðrún hefur víðtæka reynslu af stefnumótun, innleiðingu stefnu og stjórnun breytinga hjá íslenskum fyrirtækjum og stofnunum. Hún hefur starfað sem stjórnandi, ráðgjafi og verkefnisstjóri og setið í stjórnum fyrirtækja og opinberra aðila. Guðrún var jafnframt formaður Stjórnvísi á fyrstu árum félagsins.
Í vinnustofunni tengir hún þróun í gervigreind og kauphegðun við stefnumótandi spurningar um viðskiptavini, virði, traust og samkeppnisstöðu.
Þátttökugjald
- Félagsfólk SVÞ: Frítt
- Aðilar utan félagsaðildar: 19.900 kr. á mann
____________________________________________