FRÆÐSLA
Fræðsla og hæfniþróun – lykill að árangri
SVÞ leggur áherslu á að efla menntun og hæfniþróun í verslunar- og þjónustugreinum. Samtökin vinna að mótun grunn- og framhaldsmenntunar með tilliti til þarfa atvinnulífsins og styðja við starfs- og endurmenntun starfsfólks.
Samstarf og stefnumótun SVÞ vinna með yfirvöldum, launþegasamtökum og atvinnurekendasamtökum að mótun menntastefnu og eiga fulltrúa í stjórn SVS – Starfsmenntasjóðs verslunar og skrifstofufólks.
Stafræn viðskiptalína og Fagnám verslunar SVÞ komu að stofnun Stafrænnar viðskiptalínu með Verzlunarskóla Íslands og vinna að þróun Fagnáms verslunar með SVS og Fræðslumiðstöð atvinnulífsins.
Ræktum vitið – hæfni starfsfólks í brennidepli Samstarfsverkefni SVÞ, VR og LÍV Ræktum vitið, setur athyglina á hæfni starfsfólks í greininni. Verkefnið leggur áherslu á sí- og endurmenntun og íslenskunám fyrir erlenda starfsmenn. Vefsíðan raektumvitid.is var opnuð í febrúar 2025.
Nýtt nám í stjórnun verslunar og þjónustu Háskólinn á Bifröst býður upp á nýtt BS-nám í stjórnun verslunar og þjónustu til að mæta þörfum atvinnulífsins. Nánari upplýsingar: bifrost.is.
Fræðsluviðburðir og námskeið SVÞ skipuleggja reglulega fræðsluviðburði og námskeið til að styrkja starfsemi fyrirtækja og auka samkeppnishæfni.
Með markvissri fræðslu og samstarfi tryggjum við framþróun verslunar og þjónustu á Íslandi!
FRÆÐSLUVIÐBURÐIR Á NÆSTUNNI
Yfir 4.000 klukkustundir í símenntun í fyrsta októberátaki Ræktum vitið
Yfir 4.000 klukkustundir í símenntun í fyrsta októberátaki Ræktum vitið Alls skráðu 270 þátttakendur rúmlega 4.000 klukkustundir í sí- og endurmenntun í október þegar fyrsta átaksverkefnið undir merkjum Ræktum vitið fór fram. Þátttakendur skráðu samtals 2.842...
Skýrari hæfniviðmið styðja starfsþróun í verslun
Starfaprófílar Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins lýsa verslunarstörfum á fjórum hæfniþrepum. Þeir gera verkefni, ábyrgð og hæfnikröfur sýnilegri og geta nýst fyrirtækjum við ráðningar, þjálfun og starfsþróun. Í nýlegri grein í VR blaðinu fjalla sérfræðingar...
Hvað viltu sjá á UPPBROTI 2027?
Hleður…
Hvert skref í símenntun telur í október | Ræktum vitið
Hvert skref í símenntun telur í október Í október býður Ræktum vitið starfsfólki og vinnustöðum í verslun og þjónustu að taka þátt í mánaðarlangri áskorun. Markmiðið er að gera starfstengda þekkingaröflun sýnilega og hvetja fleiri til að læra eitthvað nýtt á...
Hvaða verkefni myndir þú vilja fá af borðinu þínu? | Gervigreindarkönnun SVÞ
Gervigreind er nú þegar hluti af daglegum rekstri fyrirtækja. Hún getur hjálpað til við allt frá markaðssetningu og sölu til samskipta, leiðtogahæfni, stefnumótunar og ákvarðanatöku. SVÞ vill kanna hvar hagnýt gervigreindarverkfæri gætu skapað mest virði fyrir...
Sjö atriði úr nýrri gervigreindarskýrslu McKinsey sem skipta stjórnendur í verslun máli
Gervigreind er ekki lengur tæknimál heldur samkeppnismál. Ný skýrsla McKinsey og EuroCommerce um áhrif gervigreindar á evrópska verslun dregur upp skýra mynd af þeim breytingum sem eru fram undan. Þar er gervigreind ekki kynnt sem enn ein tækninýjungin heldur sem einn...








