Vef-fundur í samstarfi SVÞ, SI og Deloitte
Evrópusambandið vinnur nú að einu umfangsmesta umhverfismálum sínum til þessa – nýju regluverki um umbúðir og umbúðaúrgang (Packaging and Packaging Waste Regulation – PPWR).
Reglurnar munu hafa víðtæk áhrif á alla sem framleiða, flytja inn eða selja vörur í umbúðum á EES-markaði, þar á meðal íslensk fyrirtæki.
Á fundinum sem fer fram á Zoom, verður farið yfir hvað PPWR felur í sér, hvernig önnur Norðurlönd eru að undirbúa innleiðingu þess og hvað íslensk fyrirtæki þurfa að hafa í huga þegar breytingarnar taka gildi.
Dagsetning: 20. nóvember 2025
Tími: 09:00 – 10:00
Staður: Á Zoom herbergi SVÞ.
Fyrirlesarar:
-
Gunnar S. Magnússon, meðeigandi og yfirmaður sjálfbærniráðgjafar Deloitte
-
Edward Sims, Director, Deloitte Danmörk
-
Lyndsey Parette, Assistant Manager, Deloitte Danmörk
Helstu umræðuefni:
-
Hvað er PPWR og hver eru markmið reglugerðarinnar?
-
Reynslan af innleiðingu á Norðurlöndunum – hvað getum við lært?
-
Hvað þurfa íslensk fyrirtæki að gera til að undirbúa sig?
-
Hvar stendur Ísland í innleiðingu reglugerðarinnar?
Fyrir hvern er fundurinn?
Fyrirtæki í verslun, þjónustu og framleiðslu sem starfa með innflutning, pökkun, dreifingu eða sölu á vörum í umbúðum – og allir sem bera ábyrgð á sjálfbærni, rekstrarferlum eða stefnumótun í umhverfismálum.
Skráning nauðsynleg!

