Site icon SVÞ – Samtök verslunar og þjónustu

Innleiðing og árangur vildarkerfa í verslun.

Innleiðing og árangur vildarkerfa í verslun

Framtíð verslunar: Innleiðing og árangur vildarkerfa

Vertu með okkur á þessum spennandi tengsla og fræðsluviðburði þar sem við skoðum möguleika verslana við innleiðingu og notkun vildarkerfa.

Staður: Húsi atvinnulífsins, Borgartúni 35, 105 Reykjavík,
Dagur:  þriðjudaginn 28. maí nk.
⏰ 15:30 – 16:45 (Húsið opnar 15:15)

Af hverju ættir þú að mæta?
Þetta er einstakt tækifæri fyrir alla sem starfa í verslun til að öðlast dýpri skilning á því hvernig góð vildarkerfi geta umbreytt viðskiptum þeirra og tengjast öðru fólki í greininni.

Við fáum fólkið með reynsluna, þekkinguna og hugmyndirnar til að gefa okkur innsýn inní nýjustu strauma við innleiðingu og framkvæmd vildarkerfa í verslunum, með áherslu á að hámarka ávinning þeirra.  Þá skoðum við hvernig sterkt vildarkerfi getur eflt sambandið við viðskiptavinina, aukið tryggð þeirra og skapað ný tækifæri til vaxtar.

Framsöguerindi;

Vertu viss um að skrá þig og komdu til að kynnast tækifærunum sem geta bætt verslunina þína!
ATH! Takmarkaður fjöldi þátttökusæta.

______

SVÞ er samfélag fólks og fyrirtækja í verslunar og þjónustugreinum, ef þú ert ekki nú þegar hluti af samfélaginu, smelltu HÉR til að kynna þér aðild. 

Exit mobile version