Site icon SVÞ – Samtök verslunar og þjónustu

Yfirlit yfir starfsemi SSSK starfsárið 2019-2020

SSSK yfirlit 2019-2020

Stjórn SSSK var þannig skipuð á starfsárinu:

Sara Dögg Svanhildardóttir, formaður

Þórdís Jóna Sigurðardóttir, varaformaður

Meðstjórnendur voru:

Jón Örn Valsson

Sigríður Stephensen

Gísli Guðmundsson. 

Varamenn voru:

Berglind Grétarsdóttir 

Alma Guðmundsdóttir

 

Tæpt verður á því helsta í starfsemi samtakanna hér á eftir:

 

Kjaramál 

Samningar leik– og grunnskólakennara voru lausir en samningar ekki náðst. 

Samskipti við opinbera aðila 

Hagsmunagæsla fyrir SSSK snýr mikið að samskiptum og samvinnu við ríki og sveitarfélög. Komu mörg álitamál til umfjöllunar á starfsárinu. 

Unnið hefur verið að því allt starfsárið að ná fram skýringum á forsendum hagstofutölu, forsendu útreikninga á framlagi til grunnskólanna. Fundur í menntamálaráðuneytinu ásamt erindi til ráðherra um rýni á forsendu hefur ekki skilað árangri enn.  

Samráðsnefnd leik– og grunnskóla 

SSSK eiga einn aðalfulltrúa og einn til vara í samráðsnefnd leik– og grunnskóla á vegum mennta– og menningarmálaráðuneytis. Hlutverk nefndarinnar er að vera umræðu– og samstarfsvettvangur aðila um ýmis fagleg málefni leikskóla og grunnskóla. Fyrirkomulag fundanna er yfirleitt þannig að ráðherra menntamála situr fundinn að hluta og síðan taka fulltrúar umræðu um þau fjölbreyttu mál sem eru til kynningar og umræðu í nefndinni hverju sinni.  

Alþjóðlegt samstarf 

SSSK eru aðili að The European Council of National Associations of Independent Schools, ECNAIS, www.ecnais.org. Haldnar eru tvær ráðstefnur á vegum samtakanna ár hvert, vor og haust. Eru þessar ráðstefnur mjög vel sóttar af fulltrúum sjálfstæðra skóla víðsvegar að úr heiminum og er mikill stuðningur af þessu samstarfi. Formaður ásamt fulltrúa stjórnar sóttu árlega ráðstefnu í Madrid á haustmaánuðum þar sem viðfangsefnið var tækni í skólastarfi.  

Félagsstarf SSSK 

Öflugt félagsstarf er einkennandi í starfi samtakanna þar sem stefnt er að því að upplýsa, fræða og skemmta félagsmönnum bæði á leik– og grunnskólastigi. 

Aðalfundur SSSK 2019 

Aðalfundur SSSK var haldinn 2. maí sl. í Húsi atvinnulífsins. Sara Dögg Svanhildardóttir frá Arnarskóla var endurkjörin formaður og varaformaður var kjörin Þórdís Jóna Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri Hjallastefnunnar ehf. Í lok fundar ávarpaði Ólafur Stefánsson handboltakempa með meiru aðalfundargesti. 

Dagur skólastjórans er fastur viðburður í starfi samtakanna og var að þessu sinni fagnað í lok október. Að venju var blandað saman leik og starfi og Ísaksskóli heimsóttur. 

Félagsfundir. Á hverju starfsári er fundað með fulltrúum frá Skóla– og frístundasviði Reykjavíkurborgar þar sem rekstrartengd mál eru tekin fyrir. 

Félagsfundur vegna kjaramála  Kristín Þóra frá kjarasviði SA var gestur á vel sóttum félagsfundi og fór yfir samningaferlið og aðkomu SA að samningsgerð fyrir SSSK. 

Ráðstefna SSSK 2019. SSSK blésu til sinnar árlegu ráðstefnu 1. mars sl. undir yfirskriftinni „Líður öllum vel?“.  Ráðstefnan var haldin í Hörpunni með þátttöku ríflega 200 manns. Erlendur gestur ráðstefnunnar var Sören Tonnesen skrifstofustjóri samtaka sjálfstæðra skóla í Danmörku. 

Exit mobile version