Site icon SVÞ – Samtök verslunar og þjónustu

Fræðslufundur 23. janúar – Stór skref í framþróun greiðsluþjónustu

greiðsluþj 1200x628 FACEBOOK rétt
  • Facebook
  • Twitter
  • Gmail
  • LinkedIn
Ný löggjöf um greiðsluþjónustu mun taka gildi hér á landi innan skamms. Þessi nýja löggjöf, ásamt mjög miklum tækniframförum, mun gjörbreyta starfsemi  fjármálafyrirtækja og einkum hafa áhrif á framþróun greiðsluþjónustu og skapa ný og áður óþekkt tækifæri fyrir verslunar- og þjónustufyrirtæki.

Þessar miklu breytingar sem eru rétt handan við hornið verða ræddar á fræðslufundi SVÞ sem haldinn verður þriðjudaginn 23. janúar kl. 8.30, Kviku Húsi atvinnulífsins.

Framsögumenn verða:

Georg Lúðvíksson, forstjóri Meniga
Framtíð bankaþjónustu og PSD2

Friðrik Þór Snorrason, forstjóri Reiknistofu bankanna
Áhrif breytinga á fjármálamarkaði á verslun og þjónustu

Fundarstjóri: Margrét Sanders, formaður SVÞ

 

Oops! We could not locate your form.

Exit mobile version