Haustréttir SVÞ 2026: Umbreytingar sem skila árangri
Hvað virkar í rekstri og hvað gerum við næst?
Þessar spurningar verða í forgrunni á Haustréttum SVÞ fimmtudaginn 8. október á Vox Club. Þar koma stjórnendur aðildarfyrirtækja saman til að ræða stöðu verslunar og þjónustu, deila reynslu og skoða tækifæri til umbóta.
Auður Daníelsdóttir, formaður SVÞ og forstjóri Dranga, flytur ávarp. Rúnar Skúli Magnússon, forstöðumaður vöruþróunar Motus, rýnir í tölurnar sem varpa ljósi á stöðuna og Valdimar Sigurðsson, prófessor við Háskólann í Reykjavík, fjallar um neytendahegðun á umbreytingatímum.
Reynsla úr rekstri skipar stóran sess í dagskránni. Arnar Þorsteinsson, forstjóri AÞ-Þrifa, segir frá því hvernig tæknin umbreytir rekstrinum og Víkingur Grímsson, framkvæmdastjóri markaðssviðs Inchcape, deilir reynslusögu úr bílgreininni.
Hvað brennur á stjórnendum?
Gestir fá tækifæri til að ræða saman og koma sínum sjónarmiðum á framfæri áður en fulltrúar atvinnulífs, ríkis og borgar taka þátt í pallborðsumræðum. Þar verður rætt um breytingar í greininni og það sem þarf til að styrkja rekstrarumhverfi verslunar og þjónustu.
Í pallborði verða Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra, Hildur Björnsdóttir borgarstjóri Reykjavíkur, Björgvin Ingi Ólafsson, sviðsstjóri Stjórnendaráðgjafar Deloitte, og Jón Ásgeir Jóhannesson, stjórnarformaður Dranga. Valdimar Sigurðsson stýrir umræðunum.
Fundarstjóri Haustrétta er Birna Ósk Einarsdóttir, forstjóri Húsasmiðjunnar.
Húsið verður opnað kl. 14:30 og dagskrá hefst kl. 15:00. Viðburðinum lýkur kl. 17:30, að loknum léttum þjóðlegum veitingum og tengslamyndun.
Haustréttir eru ætlaðar stjórnendum aðildarfyrirtækja SVÞ. Við hvetjum félagsfólk til að nýta tækifærið til að bera saman bækur, kynnast reynslu annarra og taka þátt í samtali um næstu skref verslunar og þjónustu.
Hvert stefnir evrópsk netverslun? Ný Evrópuskýrsla 2026 kynnt
Nýjar niðurstöður um þróun netverslunar í Evrópu
Ecommerce Europe og EuroCommerce standa fyrir opnum vefviðburði þriðjudaginn 22. september 2026, kl. 8.30–9.30 að íslenskum tíma. Þar verður European E-commerce Report 2026 kynnt, en hún er ein helsta skýrsla Evrópu um þróun netverslunar og stafrænna markaða.
Á viðburðinum verða kynntar nýjustu niðurstöður um stöðu og þróun netverslunar við neytendur (B2C) í Evrópu. Fjallað verður um markaðsþróun, neytendahegðun, tækifæri og áskoranir í greininni, sem og áhrif nýrrar löggjafar á samkeppnisumhverfi netverslunar.
Sérfræðingar frá Centre for Market Insights við Amsterdam University of Applied Sciences kynna helstu niðurstöður skýrslunnar og taka þátt í umræðum með fulltrúum atvinnulífsins.
Viðburðurinn ætti að höfða sérstaklega til fyrirtækja á sviði verslunar, þjónustu og rafrænna viðskipta sem vilja fylgjast með þróuninni á evrópskum markaði.
Vefviðburðurinn fer fram þriðjudaginn 22. september 2026, kl. 10.30–11.30 CEST, sem samsvarar kl. 8.30–9.30 að íslenskum tíma.
Ný tækni og regluverk móta umræðu á Retail Innovation Summit 2026
EuroCommerce stendur fyrir Retail Innovation Summit 2026 í Brussel 10. júní þar sem leiðtogar úr verslun, stjórnsýslu og stefnumótun ræða lykiláskoranir greinarinnar. Áhersla er á samkeppnishæfni, stafræna þróun og breytt rekstrarumhverfi.
Á fundinum koma saman fulltrúar frá Evrópusambandinu, fyrirtækjum og samtökum til að fjalla um þrjú meginviðfangsefni: hvernig tryggja megi jafnræði í samkeppni, hvernig styrkja megi neytendavernd á netinu og hvaða áhrif ný tækni – svokölluð „agentic commerce“ – mun hafa á framtíð verslunar.
Viðburðurinn er hluti af áframhaldandi umræðu á vettvangi EuroCommerce, sem eru helstu hagsmunasamtök verslunar og heildsölu í Evrópu og hafa veruleg áhrif á stefnumótun sem snertir rekstrarumhverfi fyrirtækja í greininni.
Á dagskrá eru erindi og pallborð með þátttöku háttsettra fulltrúa, þar á meðal frá framkvæmdastjórn ESB og Evrópuþinginu, auk leiðtoga úr atvinnulífinu. Umræðan mun snúa að því hvernig regluverk, stafrænar lausnir og markaðsaðstæður móta samkeppni og nýsköpun í evrópskri verslun.
Áhrif á fyrirtæki og markað
Umræðuefni ráðstefnunnar snerta beint rekstrarumhverfi fyrirtækja í verslun og þjónustu. Sérstaklega skiptir máli hvernig jafnræði í samkeppni er tryggt gagnvart alþjóðlegum netverslunum, hvernig regluverk um neytendavernd þróast og hvaða áhrif ný tækni hefur á viðskiptalíkön.
Fyrir íslensk fyrirtæki, sem starfa á opnum og alþjóðlegum markaði, gefa slíkir viðburðir vísbendingar um þá stefnu sem mótar Evrópuregluverkið á næstu árum. Það hefur bein áhrif á samkeppnishæfni, kostnað og tækifæri til nýsköpunar.
Retail Innovation Summit 2026 dregur fram lykilspurningar um framtíð verslunar í Evrópu. Niðurstöður og umræður frá fundinum munu hafa áhrif á stefnumótun sem snertir fyrirtæki í greininni á næstu árum.
Sjá nánari upplýsingar inná vef Eurocommerce – HÉR!
Fundur um umferðarmál á höfuðborgarsvæðinu verður haldinn 28. apríl
Greiðari leið – hugmyndir óskast
Fundur um umferðarmál á höfuðborgarsvæðinu verður haldinn 28. apríl undir yfirskriftinni Greiðari leið – hugmyndir óskast, en SVÞ – Samtök verslunar og þjónustu eru meðal samstarfsaðila að viðburðinum.
Til stendur að halda fund um umferðarmál á höfuðborgarsvæðinu undir yfirskriftinni Greiðari leið – hugmyndir óskast og verður hann haldinn á Hilton við Suðurlandsbraut 28. apríl.
Húsið opnar kl. 08:30 og fundurinn hefst kl. 9:00 og stendur til 10:45.
Efnt er til fundarins til að stuðla að upplýstri umræðu um samgöngur á höfuðborgarsvæðinu fyrir sveitarstjórnarkosningarnar um miðjan maí. Efnt verður til samtals um hugmyndir og lausnir sem til þess eru fallnar að greiða úr umferð á höfuðborgarsvæðinu fyrir alla fararmáta. Þá verður leitað svara hjá oddvitum flokkanna við því hvaða viðhorf þeir hafa til samgöngumála á höfuðborgarsvæðinu.
Í aðdraganda ráðstefnunnar verður teflt fram forvitnilegum staðreyndum um samgöngumál, tekið hús á oddvitum flokka og helstu sérfræðingum og leitað viðhorfa hjá íbúum í ólíkum hverfum höfuðborgarsvæðisins.
Að fundinum stendur Hugvekjan, sem hefur að markmiði að stuðla að opnu samtali og upplýstri umræðu um mál sem eru efst á baugi í samfélaginu. Samgöngumál á höfuðborgarsvæðinu eru stórt hagsmunamál fyrir atvinnulíf og samfélag. Greiðari samgöngur draga úr vinnutapi, lækka flutningskostnað, efla skilvirkni og styðja við framleiðni og hagvöxt. Þær eru þannig lykilforsenda samkeppnishæfni fyrirtækja og heilbrigðrar verðmætasköpunar.
Á meðal bakhjarla eru Samtök atvinnulífsins, SVÞ – Samtök verslunar og þjónustu og Félag atvinnurekenda. Einnig eru á meðal bakhjarla fyrirtækin við Suðurlandsbraut 4–32, meðal annars Eik hf., Eirvík fasteignir ehf., Glitnir ehf., Heimar hf., Investo ehf., Kísiliðjan hf., Lyfjaver ehf., Mænir Reykjavík ehf., Mörkin fasteign ehf., Reitir hf., Róshildur ehf., SB. 18 ehf., Stemmi ehf. og Þorgrímur fasteignafélag ehf., auk BL, Heklu bílaumboðs og Toyota á Íslandi.
Nánari upplýsingar og skráning á fundinn —> SMELLTU HÉR!
UPPBROT 2026 Stemningin í myndum
UPPBROT 2026 í myndum – stemningin sem ekki er hægt að setja í Excel
Á UPPBROTI SVÞ 2026 komu saman stjórnendur, sérfræðingar og frumkvöðlar úr verslun og þjónustu til að ræða það sem skiptir rekstur máli – í dag og á morgun. En það sem stendur eftir er ekki bara efnið á sviðinu, heldur stemningin í salnum.
Myndirnar sem nú hafa verið birtar á bæði Facebook og LinkedIn fanga einmitt þessa orku:
samtölin á ganginum, augnablikin milli atriða, hláturinn, einlægnina og tengingarnar sem myndast þegar fólk hittist í raunheimum.
Þar sem tengsl verða til
UPPBROT er ekki bara ráðstefna – þetta er vettvangur þar sem:
-
Hugmyndir kvikna
-
Sjónarmið mætast
-
Samstarf tekur fyrstu skref
Það sést á myndunum að umræðan hélt áfram langt út fyrir sviðið, það er þar sem raunveruleg verðmæti verða til.
Skoðaðu myndirnar
Við hvetjum félagsfólk og aðra áhugasama til að skoða myndirnar frá deginum og rifja upp – eða kynnast – þeirri stemningu sem myndaðist.
👉 Sjá myndirnar á Facebook-síðu SVÞ
UPPBROT 2026 – RÁÐSTEFNAN
UPPBROT 2026 – HAPPY HOUR
UPPBROT er upplifun og ef myndirnar segja eitthvað – þá er það þetta:
Þetta er samtal sem er rétt að byrja.