Haustréttir SVÞ 2026
Umbreytingar í rekstri – frá innsýn til aðgerða
Haustréttir SVÞ eru árlegur leiðtogafundur stjórnenda þar sem við tökum stöðuna, mótum sameiginlegar áherslur og breytum innsýn í aðgerðir.
Að þessu sinni beinum við sjónum að umbreytingum í rekstri, breyttri neytendahegðun og því hvernig fyrirtæki takast á við nýjan veruleika.
Dagsetning: 8. október 2026,
Staður: Hilton Hotel Nordica – VOX CLUB, Suðurlandsbraut 2, 105 Reykjavik.
Húsið verður opnað kl. 14:30.
Dagskrá hefst kl. 15:00.
Innsýn inn í dagskrá dagsins:
Neytendahegðun á umbreytingatímum
Valdimar Sigurðsson, prófessor í markaðsfræði og neytendasálfræði við Háskólann í Reykjavík, fjallar um breytta neytendahegðun og hvað hún þýðir fyrir fyrirtæki og stjórnendur á umbreytingartímum.
Þegar tæknin umbreytir rekstrinum
Reynslusaga úr atvinnulífinu um innleiðingu nýrrar tækni, breytingar á verklagi og lærdóminn sem verður til þegar umbreytingin færist af teikniborðinu og inn í daglegan rekstur.
Salurinn fær orðið
Þátttakendur taka virkan þátt og draga fram þau málefni og áskoranir sem brenna helst á atvinnulífinu. Niðurstöðurnar verða innlegg í pallborðsumræður dagsins.
Pallborð – frá umræðu til aðgerða
Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra og Hildur Björnsdóttir borgarstjóri Reykjavíkur taka þátt í pallborði ásamt fulltrúum úr atvinnulífinu og aðildarfélögum SVÞ. Lifandi umræður þar sem ólík sjónarhorn mætast og sjónum er beint að því hvað þarf til að fyrirtæki geti tekist á við breytingar, umbreytt rekstri og gripið tækifærin fram undan.
Fundarstjóri Haustrétta SVÞ 2026 verður Birna Ósk Einarsdóttir, forstjóri Húsasmiðjunnar.