SVÞ, VR og LÍV hvetja landsmenn til að versla fallega á aðventunni
SVÞ – Samtök verslunar og þjónustu, VR og Landssamband íslenskra verzlunarmanna (LÍV) beina sameiginlegri áskorun til landsmanna um að sýna starfsfólki verslana virðingu og tillitssemi í aðdraganda jóla. Samtökin vekja jafnframt athygli á mikilvægi þess að tryggja öryggi starfsfólks og sporna gegn áreitni, hótunum og ofbeldi í verslunum.
Aðventan er einn annasamasti tími ársins í íslenskri verslun. Starfsfólk verslana leggur sig fram um að veita góða þjónustu í miklu annríki og því er mikilvægt að samskipti viðskiptavina og starfsfólks einkennist af gagnkvæmri virðingu, kurteisi og tillitssemi.
Í sameiginlegri grein forsvarsfólks SVÞ, VR og LÍV er vakin athygli á þeim áskorunum sem starfsfólk verslana stendur frammi fyrir, meðal annars vegna áreitni, hótana og ofbeldis í starfi. Sérstakar áhyggjur eru af stöðu ungs starfsfólks, sem er fjölmennur hópur í verslun og þjónustu.
Sameiginleg áhersla á öryggi starfsfólks
SVÞ, VR og LÍV hafa tekið höndum saman um að efla öryggi starfsfólks í verslunum. Í júní 2025 undirrituðu samtökin minnisblað um samstarf sem miðar að því að sporna gegn ofbeldi, hótunum og áreitni á vinnustöðum.
Markmiðið er að stuðla að öruggara starfsumhverfi með aukinni vitundarvakningu, forvörnum og skýrum viðbrögðum við óviðeigandi hegðun.
Í sameiginlegri grein samtakanna er jafnframt lögð áhersla á ábyrgð fyrirtækja á að tryggja öruggt starfsumhverfi og mikilvægi þess að stjórnvöld styðji við aukna vernd starfsfólks.
Virðing og tillitssemi í jólaversluninni
Þótt langflest samskipti í verslunum gangi vel geta komið upp erfiðar aðstæður, sérstaklega þegar mikið er að gera. Mikilvægt er að minna á að starfsfólk verslana á rétt á að sinna störfum sínum án þess að verða fyrir áreitni, hótunum eða ofbeldi.
Með sameiginlegri áskorun vilja SVÞ, VR og LÍV hvetja viðskiptavini til að sýna þolinmæði og skilning í annríki aðventunnar.
Góð samskipti eru allra hagur og með gagnkvæmri virðingu stuðlum við að öruggara og ánægjulegra umhverfi fyrir bæði starfsfólk og viðskiptavini.
Verslum fallega á aðventunni. Sýnum starfsfólki verslana virðingu, kurteisi og tillitssemi.
Lesa sameiginlega grein forsvarsfólks SVÞ, VR og LÍV á vef LÍV