Fólksbílar hafa stækkað verulega frá aldamótum. Benedikt S. Benediktsson, framkvæmdastjóri SVÞ og Bílgreinasambandsins, ræddi þróunina og áhrif hennar í viðtali við Ævar Örn Jósepsson í Speglinum á RÚV.
Tilefni viðtalsins var ný rannsókn evrópsku samtakanna Transport & Environment. Samkvæmt henni hafa fólksbílar að meðaltali lengst um 1,2 sentimetra á ári frá aldamótum og bæði breikkað og hækkað um hálfan sentimetra á ári.
Á aldarfjórðungi jafngildir það um 30 sentimetra aukningu í lengd og 12–13 sentimetra aukningu í breidd og hæð.
Þróunin endurspeglar meðal annars breyttar þarfir og óskir kaupenda, auk krafna sem gerðar eru til nútímaökutækja. Stærri bílar hafa þó jafnframt áhrif á umferðaröryggi, orkunotkun, vegakerfið og nýtingu bílastæða.
Lesið fréttina í heild á vef Bílgreinasambandsins.
Einnig má hlusta á viðtalið í Speglinum á vef RÚV.

