Site icon SVÞ – Samtök verslunar og þjónustu

Erlend netverslun jókst um 15% árið 2025

Heildarvelta erlendrar netverslunar nam 34,5 milljörðum króna árið 2025 og jókst um 15% milli ára samkvæmt nýrri skýrslu Rannsóknaseturs verslunarinnar (RSV). Í skýrslunni, er þróun erlendrar netverslunar greind í smáatriðum eftir vöruflokkum og upprunalöndum.

Skýrslan „Erlend netverslun 2025“ veitir ítarlega innsýn í umfang og þróun netkaupa Íslendinga erlendis. Þar kemur meðal annars fram að landsmenn keyptu boli fyrir 1.153 milljónir króna, dekk fyrir 60 milljónir króna og ryksugur fyrir 46 milljónir króna á árinu. Einnig má finna sértæk dæmi um innflutning einstakra vörutegunda, svo sem ólífuolíu, kerta og annarra daglegra neysluvara.

Markmið skýrslunnar er að varpa skýrara ljósi á stöðu erlendrar netverslunar gagnvart innlendri verslun og hvernig þróunin hefur verið á síðustu árum. Í skýrslunni er meðal annars farið yfir þróun frá árinu 2022 í flokkum á borð við fataverslun, snyrtivörur, matvöru, byggingavörur, raftæki og heimilisbúnað.

Einnig er að finna spá um þróun innlendrar og erlendrar netverslunar til ársins 2030, auk ítarlegrar sundurliðunar á tollflokkastigi þar sem skoðaðar eru einstakar vörutegundir, meðal annars veggfóður, barnavagnar, úr og hunang. Þá inniheldur skýrslan greiningu á helstu upprunalöndum vara og umfangsmestu vöruflokkum frá 15 stærstu viðskiptalöndunum.

Sérstakur kafli er tileinkaður innflutningi á fatnaði og skóm frá Svíþjóð og þróun þess markaðar frá árinu 2016. Að mati RSV getur skýrslan nýst fyrirtækjum í verslun og heildverslun til að meta betur umfang erlendrar netverslunar innan sinna vöruflokka og þróun samkeppnisumhverfisins.

Almennt verð skýrslunnar er 199 þúsund krónur en áskrifendur Veltunnar fá hana á sérkjörum í maí. Hægt er að panta skýrsluna með því að senda póst á klara(hjá)rsv.is.

Exit mobile version