Site icon SVÞ – Samtök verslunar og þjónustu

Haustréttir SVÞ 2026: Umbreytingar sem skila árangri

Hvað virkar í rekstri og hvað gerum við næst?

Þessar spurningar verða í forgrunni á Haustréttum SVÞ fimmtudaginn 8. október á Vox Club. Þar koma stjórnendur aðildarfyrirtækja saman til að ræða stöðu verslunar og þjónustu, deila reynslu og skoða tækifæri til umbóta.

Auður Daníelsdóttir, formaður SVÞ og forstjóri Dranga, flytur ávarp. Rúnar Skúli Magnússon, forstöðumaður vöruþróunar Motus, rýnir í tölurnar sem varpa ljósi á stöðuna og Valdimar Sigurðsson, prófessor við Háskólann í Reykjavík, fjallar um neytendahegðun á umbreytingatímum.

Reynsla úr rekstri skipar stóran sess í dagskránni. Arnar Þorsteinsson, forstjóri AÞ-Þrifa, segir frá því hvernig tæknin umbreytir rekstrinum og Víkingur Grímsson, framkvæmdastjóri markaðssviðs Inchcape, deilir reynslusögu úr bílgreininni.

Hvað brennur á stjórnendum?

Gestir fá tækifæri til að ræða saman og koma sínum sjónarmiðum á framfæri áður en fulltrúar atvinnulífs, ríkis og borgar taka þátt í pallborðsumræðum. Þar verður rætt um breytingar í greininni og það sem þarf til að styrkja rekstrarumhverfi verslunar og þjónustu.

Í pallborði verða Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra, Hildur Björnsdóttir borgarstjóri Reykjavíkur, Björgvin Ólafsson, sviðsstjóri Stjórnendaráðgjafar Deloitte, og Jón Ásgeir Jóhannesson, stjórnarformaður Dranga. Valdimar Sigurðsson stýrir umræðunum.

Fundarstjóri Haustrétta er Birna Ósk Einarsdóttir, forstjóri Húsasmiðjunnar.

Húsið verður opnað kl. 14:30 og dagskrá hefst kl. 15:00. Viðburðinum lýkur kl. 17:30, að loknum léttum þjóðlegum veitingum og tengslamyndun.

Haustréttir eru ætlaðar stjórnendum aðildarfyrirtækja SVÞ. Við hvetjum félagsfólk til að nýta tækifærið til að bera saman bækur, kynnast reynslu annarra og taka þátt í samtali um næstu skref verslunar og þjónustu.

Dagskrá og skráning á Haustrétti SVÞ 2026 –> HÉR! 

Exit mobile version