Erlend netverslun jókst um 15% árið 2025
Heildarvelta erlendrar netverslunar nam 34,5 milljörðum króna árið 2025 samkvæmt nýrri skýrslu Rannsóknaseturs verslunarinnar (RSV). Veltan jókst um 15% milli ára og sýnir áframhaldandi aukningu í kaupum Íslendinga hjá erlendum netverslunum.
Skýrslan „Erlend netverslun 2025“ er gefin út í fyrsta sinn og veitir ítarlega yfirsýn yfir þróun erlendra netkaupa, helstu vöruflokka og upprunalönd vara. Hún er ætluð fyrirtækjum í verslun og heildverslun sem vilja fá skýrari mynd af stöðu markaðarins og samkeppni frá erlendum aðilum.
Meðal dæma úr skýrslunni má nefna að Íslendingar keyptu boli fyrir 1.153 milljónir króna í erlendum netverslunum á síðasta ári, dekk fyrir 60 milljónir króna og ryksugur fyrir 46 milljónir króna. Þá námu kaup á kertum 24 milljónum króna og innflutningur á ólífuolíu vegna netverslunar 3,6 milljónum króna.
Skýrslan inniheldur meðal annars:
-
Spá um þróun innlendrar og erlendrar netverslunar til ársins 2030
-
Þróun erlendrar netverslunar frá 2022 eftir vöruflokkum
-
Ítarlegt niðurbrot á tollflokkastigi
-
Greining á helstu upprunalöndum vara
-
Sérkafla um innflutning á fatnaði og skóm frá Svíþjóð frá árinu 2016
Niðurstöðurnar gefa fyrirtækjum betri innsýn í umfang erlendrar samkeppni innan einstakra vöruflokka og hvernig kauphegðun neytenda hefur þróast undanfarin ár.
Samhliða útgáfu skýrslunnar hefur RSV einnig hafið að bjóða upp á nýja þjónustu sem felur í sér úttekt á netverslun fyrirtækja. Markmiðið er að styrkja stöðu íslenskra fyrirtækja í aukinni samkeppni við erlendar netverslanir.
Úttektin nær meðal annars til upplifunar viðskiptavina, vöruframsetningar, upplýsingagjafar og samkeppnisstöðu. Fyrirtæki fá í kjölfarið tillögur að úrbótum og forgangsröðun verkefna sem geta styrkt rekstur og sölu í stafrænu umhverfi.
Almennt verð skýrslunnar er 199 þúsund krónur en áskrifendur Veltunnar fá hana á sérstöku verði í maí.
Hægt er að panta skýrsluna eða fá frekari upplýsingar hjá RSV.

