Site icon SVÞ – Samtök verslunar og þjónustu

Breyttir rafbílastyrkir taka gildi 1. nóvember

Ný reglugerð um Loftslags- og orkusjóð tekur gildi 1. nóvember 2026. Með henni lækkar styrkur til kaupa á nýjum rafknúnum fólksbílum úr 500.000 kr. í 400.000 kr. og hámarksverð styrkhæfra fólksbíla lækkar úr 10 milljónum króna í 8 milljónir króna.

Breytingarnar gilda um umsóknir sem eru samþykktar frá og með 1. nóvember, óháð því hvenær bíllinn var keyptur eða pantaður. Til að eldri reglur gildi þarf umsókn að hafa verið samþykkt fyrir gildistökuna og öll skilyrði styrkveitingar að vera uppfyllt.

SVÞ vekur sérstaka athygli félagsmanna, einkum bílaumboða og bílasala, á skömmum fyrirvara til gildistöku. Mikilvægt er að kaupendur fái tímanlega réttar upplýsingar um styrkfjárhæðir, verðþak og vægi samþykktardags umsóknar.

Nánari upplýsingar má finna í frétt Umhverfis- og orkustofnunar. Fyrirspurnum má beina á orkusjodur@uos.is.

Exit mobile version