Benedikt S. Benediktsson, framkvæmdastjóri SVÞ, gagnrýnir nýjar aðgerðir stjórnvalda vegna eldsneytisverðs og segir þær bera með sér vantraust í garð fyrirtækja og fela í sér hættulega þróun í átt að verðstýringu.
Í viðtali við Vísi segir Benedikt að þótt SVÞ styðji tímabundna lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti, séu þær viðbótaraðgerðir sem fylgja „pínu leiktjöld“ og óþarfar í ljósi þess að virkt eftirlitskerfi sé þegar til staðar.
Samkvæmt boðuðum aðgerðum mun Samkeppniseftirlitið hafa sérstakt eftirlit með því að skattalækkunin skili sér til neytenda, auk þess sem ráðherra fær heimildir til að grípa inn í verðlagningu með beinum hætti.
Benedikt varar sérstaklega við slíkum heimildum og segir þær geta leitt til verðstýringar sem sagan sýni að geti haft neikvæðar afleiðingar. Ef verð er þrýst niður með valdboði til lengri tíma geti það grafið undan rekstrargrundvelli fyrirtækja og jafnvel leitt til skorts á vörum.
Hann bendir einnig á að skilaboðin til atvinnulífsins séu alvarleg, þar sem stjórnvöld virðist tilbúin að bæta við eftirliti, refsiheimildum og inngripum í verðlagningu. Slík nálgun geti skapað óvissu meðal fyrirtækja um framtíðarskilyrði í rekstri.
Að mati SVÞ hefði einfaldlega dugað að lækka virðisaukaskatt á eldsneyti tímabundið, án frekari íhlutunar, enda séu bæði lög og eftirlit þegar til staðar til að tryggja að lækkunin skili sér í verði til neytenda.
Sjá nánar viðtal við Benedikt S. Benediktsson á Vísi –> HÉR!

