Site icon SVÞ – Samtök verslunar og þjónustu

Umræðuskjal Samkeppniseftirlitsins fær falleinkunn hjá SVÞ og SA

Viðskiptablaðið fjallar ítarlega um málið í fréttaskýringu í dag, 8. júlí, eftir Örn Arnarson, þar sem farið er yfir umsagnir SVÞ – Samtaka verslunar og þjónustu og Samtaka atvinnulífsins (SA) um umræðuskjal Samkeppniseftirlitsins (SKE) um dagvöruverð á Íslandi.

Umræðuskjalið, sem SKE birti 10. júní, ber saman matvöruverð á Íslandi og í Evrópu og kemst að þeirri niðurstöðu að verðlag hér á landi sé hátt. Bæði SVÞ og SA gagnrýna hins vegar harðlega að skjalið sé sett fram í tómarúmi — samanburðurinn taki hvorki tillit til tekna og kaupmáttar né til afkomu íslenskrar dagvöruverslunar.

Afkoman styður ekki fákeppnisfullyrðingar

  • Facebook
  • Twitter
  • Gmail
  • LinkedIn
Í umsögn sinni bendir SVÞ á að ef hátt vöruverð mætti rekja til fákeppni og samþjöppunar, eins og SKE gefur í skyn, ætti það að endurspeglast í afkomu dagvörukeðjanna. Gögn úr ársreikningum sýna annað: hagnaður stærstu dagvöruverslana hefur numið 1,7–3% af tekjum frá árinu 2020 og hefur heldur farið lækkandi þrátt fyrir verulegar verðhækkanir á tímabilinu.

Kostnaðarsamsetning verslananna dregur upp skýrari mynd. Af hverjum 100 krónum sem neytendur greiða fyrir dagvöru fara um 79 krónur í vöruinnkaup og um 10 krónur í laun og annan starfsmannakostnað. Afgangurinn fer í annan rekstrarkostnað, afskriftir, fjármagnskostnað og skatta — þannig að eftir standa aðeins um tvær krónur í rekstrarafgang. „SVÞ hafnar því að afkoma dagvöruverslana styðji þá ályktun að þær standi að baki háu matvöruverði,“ segir í umsögninni.

 

Ísland með næstminnstu samþjöppunina á Norðurlöndum

Sérstaka athygli vekur samanburðarrannsókn norska ráðgjafarfyrirtækisins Samfunnsøkonomisk Analyse, unnin fyrir norsku systursamtök SVÞ, Virke, sem byggir meðal annars á gögnum frá systurstofnunum SKE á öllum Norðurlöndunum. Niðurstöður hennar benda til þess að samþjöppun á íslenskum dagvörumarkaði sé alls ekki óvenjuleg í norrænum samanburði — Herfindahl-Hirschman-vísitalan (HHI) mælist næstlægst á Íslandi af Norðurlöndunum og markaðsskipan hér er sambærileg því sem þekkist í nágrannalöndunum.

Rannsóknin sýnir jafnframt að íslenskar verslanir hafa náð umtalsverðri stærðarhagkvæmni: þær eru að jafnaði stærri en annars staðar á Norðurlöndum og hefur íbúum á hverja verslun fjölgað úr tæplega 2.000 árið 2015 í nær 3.000 árið 2024. Á sama tíma hefur hlutfall ráðstöfunartekna íslenskra heimila sem fer til kaupa á mat- og drykkjarvöru lækkað úr um 16% árið 2010 í 12,7% árið 2024 — og færst þannig nær því sem gerist í nágrannalöndunum.

Fari út fyrir lögbundið hlutverk

SA gengur enn lengra í sinni umsögn og dregur í efa hvort umræðuskjalið rúmist innan lögbundins hlutverks SKE. Að mati samtakanna hafi eftirlitið, með mati sínu á rekstri fyrirtækja, verðlagi og hagræðingarhvötum, farið út fyrir það hlutverk að gæta virkrar samkeppni. SA gagnrýnir jafnframt að forstjóri SKE hafi gagnrýnt rekstur fyrirtækja opinberlega áður en þeim gafst kostur á að svara fyrir sig. Í umsögninni segir að ekkert í skjalinu bendi til óheilbrigðra samkeppnishátta á dagvörumarkaði og hvetja samtökin SKE til að einbeita sér að lögbundnu hlutverki sínu: að rannsaka meint brot á samkeppnislögum.

Viðskiptablaðið bendir jafnframt á að umræðuskjalið birtist eftir að SKE fékk 30 milljóna króna fjárveitingu frá atvinnuvegaráðherra vegna sérstaks átaks stjórnvalda gegn verðbólgu og að sambærilegt skjal um eldsneytismarkaðinn hafi þegar verið birt — en fjármálageirinn gæti orðið næsta viðfangsefni eftirlitsins.

Heimild: Viðskiptablaðið Örn Arnarson, „Samkeppniseftirlitið á hálum ís“, Viðskiptablaðið, 8. júlí 2026, bls. 14–16.

Sjá einnig Yfirlýsing frá SVÞ og SA um umræðuskjöl Samkeppniseftirlitsins –> HÉR
Sjá einnig Samanburðargreiningu á norrænum dagvörumarkaði –> HÉR

_____________________________

  • Facebook
  • Twitter
  • Gmail
  • LinkedIn

  • Facebook
  • Twitter
  • Gmail
  • LinkedIn

 

 

 

Exit mobile version