SVÞ – Samtök verslunar og þjónustu hafa skilað umsögn um frumvarp til laga um breytingu á húsaleigulögum (reglubundnar breytingar á leigufjárhæð). Samtökin leggjast gegn því að frumvarpið verði samþykkt í núverandi mynd og telja leigubremsu óheppilegt stjórntæki. Hún geti veitt sitjandi leigjendum skjól um skamma stund en dragi úr hvata til útleigu, viðhalds og fjárfestingar og færi kostnaðinn yfir á þá sem koma síðar inn á leigumarkaðinn.
Í umsögninni er sérstaklega gagnrýnt að frumvarpið nái einnig til atvinnuhúsnæðis án sjálfstæðs áhrifamats, þótt rökstuðningur þess snúi að heimilum fólks. SVÞ benda á að ófrávíkjanleg ákvæði geti raskað algengum samningsformum í atvinnuleigu, skapað læsingaráhrif sem hamla samkeppni og fært verðmyndun til kærunefndar húsamála. Samtökin leggja til að frumvarpið verði dregið til baka eða endurunnið að miklu leyti, að atvinnuhúsnæði verði undanskilið með öllu og að framkvæmt verði mat á áhrifum á framboð, fjárfestingu, fjármögnun og samkeppni.
Sjá umsögn SVÞ hér -> Umsögn um frumvarp til laga um breytingu á húsaleigulögum
