SVÞ – Samtök verslunar og þjónustu hafa skilað umsögn um áform um breytingar á ýmsum lögum um skatta og gjöld. Samtökin vara við því að lengri afgreiðslufrestur ríkisskattstjóra og þrengri skilyrði fyrir bindandi álitum geti aukið réttaróvissu. Dragist afgreiðsla of lengi geti skattaðilar þurft að framkvæma ráðstafanir áður en álit liggur fyrir og þannig misst rétt til þess.
SVÞ leggja jafnframt áherslu á að ákvæði tollalaga tryggi að tollyfirvöld geti veitt fyrirframúrskurði í samræmi við viðskiptaliprunarsamninga Íslands. Þá telja samtökin eðlilegt að samræma tollafyrirkomulag rifins mozzarellaosts með viðbættum jurtaolíum því sem tíðkast erlendis, með fyrirvara um endanlega útfærslu breytingarinnar.
Sjá umsögn SVÞ hér -> 18092026 SVÞ – ums. samr 167-2026. áform Skattar og Gjöld
