Ný umbúðareglugerð Evrópusambandsins, PPWR, getur haft veruleg áhrif á íslenska verslun, veitingarekstur og framleiðslu. Benedikt S. Benediktsson, framkvæmdastjóri SVÞ, ræddi áhrif hennar í viðtali við Vísi í gær 11. ágúst 2026 [SJÁ FRÉTT]
Reglugerðinni er ætlað að draga úr umbúðaúrgangi og notkun einnota umbúða. Markmiðin eru jákvæð. Íslensk verslun hefur ekki hag af því að selja vörur í óþarflega miklum umbúðum eða umbúðum sem eru erfiðar í úrvinnslu. Hvorki verslunin né neytendur hafa þó hag af því að vöruverð hækki í ljósi hækkandi umbúðakostnaðar. Þá virðist innleiðing PPWR að ýmsu leyti geta framkallað umfangsmiklar og kostnaðarsamar breytingar án þess að ásættanlegur umhverfisárangur hljótist af.
Benedikt bendir á að íslenskar aðstæður séu aðrar en víða í Evrópu og mikilvægt sé að taka mið af því við innleiðinguna:
„Enda má gera ráð fyrir að meginhluti regluverksins hafi verið svona hannaður með hliðsjón af þörfum og ástandi í Mið- og Suður-Evrópu, sem kannski á ekki við hér, og í ýmsu tilliti erum við komin bara lengra en þau ríki sem þar eru.“
Reglurnar geta einnig haft áhrif á veitingarekstur og kallað á aukna notkun endurnýjanlegra umbúða. Benedikt segir ýmis álitaefni fylgja slíkum breytingum, meðal annars varðandi matvælaöryggi:
„Þar eru uppi fjölmörg álitamál sem snúa að bara svona heilnæmi matvælanna þegar þau eru bara ekki geymd í umbúðum eða í einhverjum stöðluðum umbúðum sem hafa sannað gildi sitt.“
Stjórnvöld þurfa að upplýsa um næstu skref
SVÞ hafa kallað eftir því að íslenskra hagsmuna verði gætt í aðdraganda þess að PPWR verður tekin upp í EES-samninginn. Telja samtökin að sambærileg sjónarmið hafi komið fram af hálfu annarra EFTA-ríkja. Skilningur SVÞ er að umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra hafi góðan skilning á stöðunni og á vettvangi ráðuneytis hans verði hagsmunagæslan virk.

