Site icon SVÞ – Samtök verslunar og þjónustu

Fjárlög 2027: SVÞ vara við áhrifum skattahækkana á heimili og atvinnulíf

SVÞ – Samtök verslunar og þjónustu hafa skilað umsögn um fjárlagafrumvarp ársins 2027 og frumvarp um skattabreytingar vegna fjárlaganna. Samtökin telja markmið um hallalaus fjárlög jákvætt en leggja áherslu á að aðlögun ríkisfjármála byggi fyrst og fremst á aðhaldi opinberra útgjalda. Boðaðar skattahækkanir geti aukið verðbólgu, dregið úr fjárfestingu og veikt atvinnu- og verðmætasköpun.

Í umsögninni er sérstaklega fjallað um hækkun kílómetragjalds og áhrif á vöruflutninga og vöruverð, auk þess sem kallað er eftir skýrara samhengi milli skatttekna af ökutækjum og framlaga til vegakerfisins. Þá gagnrýna SVÞ skerðingu stuðnings við orkuskipti og lækkun endurgreiðslna virðisaukaskatts vegna íbúðarhúsnæðis. Samtökin kalla jafnframt eftir betra mati á áhrifum aukinnar skattlagningar á fjármálafyrirtæki og ferðaþjónustu og skýrari rökstuðningi fyrir hækkun eftirlitsgjalds vátryggingamiðlara.

Sjá umsögn SVÞ hér -> 20261001 ums SVÞ frv. til fjárl 2027 og tekjubandormur

Exit mobile version