Site icon SVÞ – Samtök verslunar og þjónustu

Kílómetragjald: SVÞ kalla eftir réttari álagningu og auknum fyrirsjáanleika

SVÞ – Samtök verslunar og þjónustu hafa skilað umsögn um áform um breytingar á lögum um kílómetragjald á ökutæki. Samtökin fagna fyrirhuguðum úrbótum, meðal annars heimildum til að leiðrétta ranga álagningu, sveigjanlegri skráningu aksturs og því að ógreitt gjald fyrri eiganda hindri ekki aðalskoðun ökutækis.

SVÞ leggja jafnframt áherslu á að rekstraraðilar stærri ökutækja geti fengið mánaðarlega álagningu miðað við raunverulegan akstur til að bæta yfirsýn yfir rekstrarkostnað. Þá kalla samtökin eftir úrbótum á skráningu og gjaldtöku vegna eftirvagna og benda á hættu á rangri skiptingu aksturs milli tímabila þegar gjaldskrár breytast um áramót. Markmiðið er að tryggja rétta, gagnsæja og skiljanlega álagningu.

Sjá umsögn SVÞ -> 20260916 Umsögn SVÞ um kílómetragjald

Exit mobile version