SVÞ sendu 23. mars 2026 umsögn um frumvarp til breytinga á áfengislögum um vefverslun með áfengi. Samtökin styðja frumvarpið og telja tímabært að laga löggjöfina að breyttum verslunarháttum og raunveruleika vefverslunar. Þau leggja áherslu á að heimila innlenda vefverslun með áfengi á grundvelli skýrra reglna, meðal annars til að tryggja jafnræði við erlenda aðila, bæta samkeppnisstöðu og halda utan um viðskipti sem þegar eiga sér stað.
