Innleiðing nýrrar umbúðareglugerðar Evrópusambandsins (PPWR) hefst nú um miðjan ágúst. Reglurnar eru umfangsmiklar og munu meðal annars hafa áhrif á íslensk fyrirtæki sem framleiða vörur fyrir Evrópumarkað eða selja vörur til ESB.
Benedikt S. Benediktsson, framkvæmdastjóri SVÞ – Samtaka verslunar og þjónustu, fjallar um áhrif reglnanna í viðtali í Morgunblaðinu í dag. Hann segir markmið þeirra að mörgu leyti jákvæð, meðal annars að draga úr umbúðaúrgangi og auðvelda endurvinnslu. Hins vegar fylgi reglunum umfangsmiklar kvaðir, kostnaður og umsýsla fyrir fyrirtæki.
Íslenskir útflytjendur geta meðal annars þurft að skrá sig sérstaklega í hverju ESB-ríki sem vörur eru sendar til. Reglurnar gera jafnframt kröfur um efnisnotkun og hönnun umbúða sem geta kallað á breytingar á framleiðslu og pökkun.
Reglugerðin fellur undir EES-samninginn og mun því að óbreyttu síðar einnig hafa áhrif á íslenska innanlandsmarkaðinn. Benedikt segir mikilvægt að tekið verði tillit til íslenskra aðstæðna, enda séu hlutar regluverksins augljóslega útfærðir með stærri markaði í huga.
„Það hefur lengi verið ljóst að þetta verður algjört skrímsli,“ segir Benedikt og varar við því að einstök ákvæði geti orðið kostnaðarsöm og jafnvel haft neikvæð umhverfisáhrif hér á landi.
Nánar er fjallað um málið í Morgunblaðinu í dag, 11. ágúst 2026. –> SMELLIÐ HÉR!

