Site icon SVÞ – Samtök verslunar og þjónustu

Umsögn um frumvarp til laga um breytingu á lögum um virðisaukaskatt og samkeppnislögum (skatthlutfall eldsneytis)

SVÞ – Samtök verslunar og þjónustu skiluðu umsögn, dags. 17. apríl 2026, þar sem samtökin lýsa stuðningi við tímabundna lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti en benda á ýmsa annmarka á framkvæmd frumvarpsins.

Í umsögninni eru m.a. gerðar athugasemdir við óskýrt fyrirkomulag eftirlits, tvíverknað milli stofnana og víðtækar heimildir ráðherra til inngripa í verðlagningu, sem samtökin telja bæði óljósar og hugsanlega skapa stjórnskipuleg álitaefni.

SMELLTU HÉR til að hlaða niður umsögninni.

Exit mobile version