Site icon SVÞ – Samtök verslunar og þjónustu

Stemningin frá Haustréttum SVÞ 2026

Haustréttir SVÞ 2026 – samtal, sýn og góð stemning

Umbreytingar sem skila árangri voru í brennidepli á Haustréttum SVÞ 2026, okkar árlega lokaða fundi stjórnenda innan samtakanna. Fjölbreytt dagskrá, reynslusögur úr atvinnulífinu og líflegt pallborð gáfu gestum nýja innsýn og tækifæri til að ræða næstu skref.

Í forgangsröðun þátttakenda á áherslum fyrir stjórnvöld voru lægri vextir, einfaldara regluverk og aukinn fyrirsjáanleiki efst. Einnig var kallað eftir fyrirsjáanleika í skattheimtu og minni valdheimildum Samkeppniseftirlitsins – skýr skilaboð um hvað þarf til að styrkja rekstrarumhverfi verslunar og þjónustu.

Við þökkum öllum sem tóku þátt fyrir daginn! Hér fyrir neðan deilum við sérstöku stemningsmyndbandi sem fangar fjölbreytta dagskrána, samtalið og stemninguna á Haustréttum.

 

Exit mobile version