Site icon SVÞ – Samtök verslunar og þjónustu

Hvert skref í símenntun telur í október | Ræktum vitið

Hvert skref í símenntun telur í október

Í október býður Ræktum vitið starfsfólki og vinnustöðum í verslun og þjónustu að taka þátt í mánaðarlangri áskorun. Markmiðið er að gera starfstengda þekkingaröflun sýnilega og hvetja fleiri til að læra eitthvað nýtt á vinnudeginum.

Ræktum vitið er samstarfsverkefni SVÞ, VR og LÍV sem hvetur til sí- og endurmenntunar í verslun og þjónustu. Októberáskorunin hefst 1. október og byggir á einfaldri hugmynd: Hvert skref í átt að aukinni þekkingu og hæfni í starfi telur.

Það þarf ekki að setjast á skólabekk til að vera með. Að lesa faggrein, hlusta á hlaðvarp, sækja fyrirlestur, læra á nýtt vinnutól eða deila þekkingu með samstarfsfólki getur allt verið hluti af áskoruninni. Þátttakendur skrá hvað þeir lærðu og hversu miklum tíma þeir vörðu í það.

Vinnustaðir safna stigum saman

Starfsfólk getur skráð sig og vinnustað sinn til leiks eða gengið til liðs við vinnustað sem þegar er skráður. Hver skráning leggur sitt af mörkum til sameiginlegs árangurs vinnustaðarins, sem sést á stigatöflu átaksins.

Vinnustaðir keppa í fjórum stærðarflokkum við aðra vinnustaði af sambærilegri stærð. Í lok október fær stigahæsti vinnustaðurinn í hverjum flokki viðurkenninguna Ræktum vitið vinnustaður 2026.

Áskorunin er tækifæri fyrir fyrirtæki til að hvetja starfsfólk til starfsþróunar og gera þann lærdóm sem þegar á sér stað í vinnunni sýnilegri. Stutt fræðslustund, samtal við samstarfsfélaga eða ný færni sem nýtist í starfi getur verið fyrsta skrefið.

Safnið fólkinu ykkar saman og skráið ykkur til leiks á vef Ræktum vitið –> HÉR! 

Exit mobile version