Aðalfundur SVÞ 2024

Reykjavík, 20. febrúar 2024

Til aðildarfyrirtækja SVÞ – Samtaka verslunar og þjónustu

BOÐUN AÐALFUNDAR SVÞ – SAMTAKA VERSLUNAR OG ÞJÓNUSTU

Með bréfi þessu er boðað til aðalfundar SVÞ – Samtaka verslunar og þjónustu hinn 14. mars 2024 kl. 08:30 í fundarsalnum Hyl, Húsi atvinnulífsins, Borgartúni 35, 105 Reykjavík.

Dagskrá fundarins er eftirfarandi:

1. Ræða formanns SVÞ
2. Skýrsla stjórnar SVÞ fyrir liðið starfsár
3. Reikningar SVÞ fyrir liðið reikningsár
4. Lýst kosningu meðstjórnenda í stjórn SVÞ
5. Lýst kosningu í fulltrúaráð Samtaka atvinnulífsins
6. Kosning löggilts endurskoðanda SVÞ
7. Breytingar á samþykktum SVÞ
8. Umræður og atkvæðagreiðsla um önnur mál

Nánar um einstaka dagskrárliði:

Um 2. dagskrárlið
Skýrsla stjórnar SVÞ verður gerð aðgengileg á vefsvæði SVÞ fyrir fundinn. Á fundinum verður gerð grein fyrir helstu atriðum skýrslunnar.

Um 3. dagskrárlið
Reikningar SVÞ fyrir reikningsárið 2023 munu liggja fyrir á skrifstofu SVÞ aðildarfyrirtækjum til skoðunar eigi síðar en frá með 7. mars 2024. Á fundinum verður gerð grein fyrir efni þeirra.

Um 4. og 5. dagskrárliði
Til samræmis við ákvæði 2. málsl. 2. mgr. 14. gr. sbr. 2. mgr. 15. gr. samþykkta SVÞ skal kjósa þrjá meðstjórnendur til tveggja ára á aðalfundi SVÞ 2024, þ.e. kjörtímabilið milli aðalfunda 2024 og 2026.

Kjörnefnd SVÞ 2024 yfirfer framkomin framboð til stjórnar SVÞ og fulltrúaráðs Samtaka atvinnulífsins. Framboðsfrestur rennur út 22. febrúar 2024. Berist nefndinni fleiri en þrjú framboð til stjórnar SVÞ eða fleiri framboð til fulltrúaráðs Samtaka atvinnulífsins en sem nemur fulltrúasætum SVÞ munu kjörgögn væntanlega verða senda aðildarfyrirtækjum 23. febrúar 2024. Kosningarnar verða rafrænar og er áætlað að þær hefjist 28. febrúar 2024 og þeim ljúki 12. mars 2023 kl. 12:00.

Um 7. dagskrárlið
Í ljósi afkomu síðasta reikningsárs leggur stjórn SVÞ til að við samþykktir SVÞ frá 26. maí 1999, með síðari breytingum, verði bætt nýju ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:
Þrátt fyrir ákvæði 9. gr. skal veita aðilum að SVÞ, samkvæmt ákvæðum II. kafla, 3% afslátt af árgjaldi árið 2024. Afslátturinn skal veittur af árgjaldinu eftir að það hefur verið ákvarðað skv. 2. mgr. 9. gr. og skal jafnframt taka til lágmarks- og hámarksárgjalds.

Virðingarfyllst,

f.h. stjórnar SVÞ – Samtaka verslunar og þjónustu

 

 

formaður SVÞ – Samtaka verslunar og þjónustu.

___________

SJÁ NÁNARI UPPLÝSINGAR Í AÐALFUNDARBOÐI HÉR FYRIR NEÐAN
20240220-Aðalfundarboð-Aðalfundur SVÞ 2024

 

Dagsetning

14.mars, 2024

Tími

08:30 - 10:00
Hylur, Húsi atvinnulífsins

Staðsetning

Hylur, Húsi atvinnulífsins
Borgartún 35, 105 Reykjavík