
Úrvinnslusjóður á tímamótum
Samtal atvinnulífsins um framtíð Úrvinnslusjóðs og EPR-kerfa á Íslandi
Á síðustu árum hafa kröfur, umfang og fjárhagslegar skuldbindingar tengdar EPR-kerfum aukist verulega. Umræða um framtíð Úrvinnslusjóðs og fyrirkomulag endurvinnslugjalda er því ekki lengur eingöngu umhverfis- eða framkvæmdamál — heldur stefnumótandi hagsmunamál fyrir atvinnulífið.
SVÞ-Samtök verslunar og þjónustu, FA-Félag atvinnurekenda og SI-Samtök iðnaðarins bjóða til morgunfundar með félagsfólki sínu, þar sem farið verður yfir stöðu Úrvinnslusjóðs, þróun EPR-kerfa á Íslandi, reynslu af öðrum rekstrarformum og hvaða valkostir kunna að vera raunhæfir til framtíðar.
Á fundinum koma saman fulltrúar atvinnulífs, sérfræðingar og lykilaðilar úr kerfinu til að ræða:
– hvernig núverandi fyrirkomulag hefur þróast,
– hvaða áskoranir og skuldbindingar eru fram undan,
– hvaða lærdóm má draga af öðrum ábyrgðar- og rekstrarkerfum,
– og hvort tilefni sé til frekara samráðs eða sameiginlegrar eftirfylgni atvinnulífsins.
Fundurinn er sérstaklega ætlaður fjármálastjórum, framkvæmdastjórum og öðrum stjórnendum fyrirtækja sem bera umtalsverðan kostnað vegna endurvinnslugjalda og vilja fá skýrari mynd af stöðunni og mögulegum næstu skrefum.
Húsið opnar kl. 08:15 – Dagskráin hefst 08:30
Dagskrá
08:30 Opnun fundar
Sagan á bak við Úrvinnslusjóð
Hvað var, hvað er, hvert stefnir?
Kristófer Már Marinósson, formaður Úrvinnslusjoðs
Reynsla af sjálfstæðu kerfi á endurvinnslu
Reynsla af sjálfstæðu EPR-kerfi í sjávarútvegi
Hildur Hauksdóttir, stjórnarkona Úrvinnslusjóðs og sérfræðingur í umhverfismálum hjá SFS
Umfang Úrvinnslusjóðs og skuldbindingar
Sandra B. Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri Úrvinnslusjóðs og
Daníel Gunnarsson, sérfræðingur hjá Úrvinnslusjóði
Almennar spurningar úr sal
Dagsetning: Mánudagur 8. júní 2026
Tími: 08:30 – 10:00
Staður: Hús atvinnulífsins, Borgartún 35, 105 Reykjavík
ATH! Einungis í boði fyrir félagsfólk SVÞ, SI og FA
SKRÁNING NAUÐSYNLEG!