Haustréttir SVÞ 2026
Umbreytingar sem skila árangri
Hvað virkar — og hvað gerum við næst?
Haustréttir SVÞ eru árlegur leiðtogafundur stjórnenda þar sem við tökum stöðuna, mótum sameiginlegar áherslur og breytum innsýn í aðgerðir.
Að þessu sinni beinum við sjónum að umbreytingum í rekstri, breyttri neytendahegðun og því hvernig fyrirtæki takast á við nýjan veruleika.
Dagsetning: 8. október 2026,
Staður: Hilton Reykjavík – VOX CLUB, Suðurlandsbraut 2, 105 Reykjavik.
Húsið verður opnað kl. 14:30.
Dagskrá hefst kl. 15:00.
Innsýn í dagskrá dagsins:
Ávarp formanns SVÞ
Auður Daníelsdóttir, formaður SVÞ og forstjóri Dranga.
Tölurnar sem gefa okkur stöðuna
Rúnar Skúli Magnússon, forstöðumaður vöruþróunar Motus, rýnir í stöðu verslunar og þjónustu.
Neytendahegðun á umbreytingatímum
Valdimar Sigurðsson, prófessor við Háskólann í Reykjavík, fjallar um breytta neytendahegðun og áhrif hennar á rekstur.
Reynslusögur úr bransanum
Arnar Þorsteinsson, forstjóri AÞ-Þrifa, segir frá tæknibreytingum í rekstri og Víkingur Grímsson, framkvæmdastjóri markaðssviðs Inchcape, deilir reynslusögu úr bílgreininni.
Salurinn fær orðið
Gestir ræða það sem brennur á stjórnendum og leggja til umræðuefni fyrir pallborðið.
Pallborð – frá umræðu til aðgerða
Hanna Katrín Friðriksson, atvinnuvegaráðherra, Guðný María Jóhannsdóttir, formaður umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkur, Björgvin Ingi Ólafsson, sviðsstjóri Stjórnendaráðgjafar Deloitte, og Jón Ásgeir Jóhannesson, stjórnarformaður Dranga, ræða rekstrarumhverfi og tækifæri til umbreytinga, undir stjórn Valdimars Sigurðssonar.
Léttar þjóðlegar veitingar og tengslamyndun að lokinni dagskrá.
Fundarstjóri er Birna Ósk Einarsdóttir, forstjóri Húsasmiðjunnar.