Fréttamolar SVÞ | Apríl 2026

Fréttamolar SVÞ | Apríl 2026

Fréttamolar SVÞ apríl 2026:
Apríl mánuður einkenndist af skýrri og markvissri hagsmunagæslu SVÞ, sérstaklega í tengslum við eldsneytismál, verðstýringu og lagasetningu. Viðfangsefnin voru veigamikil og snertu beint rekstrarumhverfi fyrirtækja. Umræða um samkeppnishæfni, hlutverk stjórnvalda og undirbúning lagasetningar var áberandi. Einnig var sjónum beint að samgöngumálum sem lykilþætti í starfsemi fyrirtækja.

FRÉTTAMOLAR SVÞ APRÍL 2026

 

Fréttamolar SVÞ | Mars 2026

Fréttamolar SVÞ | Mars 2026

Fréttamolar SVÞ mars 2026:
Mars einkenndist af hagsmunagæslu í lykilmálum á borð við áfengissölu og eldsneytisverð, auk umræðu um breytt rekstrarumhverfi og aukna samkeppni. UPPBROT 2026 undirstrikaði mikilvægi samtals, tengsla og skýrrar framtíðarsýnar.

FRÉTTAMOLAR SVÞ MARS 2026

Fréttamolar SVÞ | Janúar 2026

Fréttamolar SVÞ | Janúar 2026

Janúar 2026 einkenndist af markvissri hagsmunagæslu með fókus á verðbólgu, skattabreytingar og regluverksákvarðanir sem hafa bein áhrif á rekstrarforsendur verslunar og þjónustu. Jafnframt var sjónum beint að skipulagsmálum og opinberri umræðu sem getur raskað fyrirsjáanleika í rekstri, samhliða undirbúningi lykilviðburða SVÞ á vormánuðum.

 

FRÉTTAMOLAR SVÞ JANÚAR 2026.pdf

Úr hagsmunagæslunni: Er heimsmarkaðsverð rétti mælikvarðinn á þróun eldsneytisverðs hér á landi? 

Úr hagsmunagæslunni: Er heimsmarkaðsverð rétti mælikvarðinn á þróun eldsneytisverðs hér á landi? 

Úr hagsmunagæslunni

Um þessar mundir hefur eldsneytisverð verið í umræðunni í tengslum við róttækar skattabreytingar um áramót. Í því samhengi hafa fallið ýmis orð, m.a. í þá átt að eldsneytisverð hér á landi hafi ekki þróast í samræmi við breytingar á heimsmarkaðsverði. Ekki er alltaf ljóst hvað átt er við þegar rætt er um heimsmarkaðsverð eldsneytis en t.d. hefur verið litið til heimsmarkaðsverðs á hráolíu, afhendingarverðs bensíns í New York höfn og heimsmarkaðsverð bensíns á Mið-Evrópumarkaði.

Þegar rætt er um heimsmarkaðsverð er t.d. hætt við að einhverjir líti svo á að það bensín sem er selt á Íslandi komi frá höfnum New York . Ef við skoðum hins vegar upplýsingar á vef Hagstofu Íslands sjáum við að tæp 99% alls blýlauss bensíns sem var flutt til Íslands frá upphafi árs 2023 var upprunnið í Noregi. Það bensín sem hér er selt á dælu er því líkast til ekki í raun að koma af heimsmarkaði heldur Noregsmarkaði. Af þeim sökum er eðlilegt að velta fyrir sér hvort verðþróun á innfluttu bensíni sem kemur hingað af Noregsmarkaði sé sú sama og verðþróun á heimsmarkaði.

Þróun heimsmarkaðsverðs á olíu á Íslandi

Heimild: Hagstofa Íslands, Seðlabanki Íslands og U.S. Energy Information Administration

Eldsneyti á Íslandi kemur ekki frá New York – heldur frá Noregi

Líkt og sjá má á meðfylgjandi mynd hefur heimsmarkaðsverð í New York höfn umreiknað í íslenskar krónur sveiflast töluvert milli mánaða og það sama á við um innflutningsverð á bensíni sem er innflutt frá Noregi. Þótt verðbreytingarnar fylgi ekki alveg sömu sveiflum virðist þónokkur fylgni á milli þeirra á köflum ef innflutningsverð er tafið um mánuð sem kann að endurspegla tafir vegna flutnings– og afhendingartíma.

Þegar árið 2025 er skoðað sérstaklega virðist sambandið á milli þróunar á heimsmarkaðsverði og innflutningsverðs á bensíni sem er flutt inn frá Noregi vera veikara en að jafnaði á tímabilinu 2023–2024. Í október hafði heimsmarkaðsverð til að mynda lækkað um 23% frá ársbyrjun á meðan innflutningsverð á bensíni frá Noregi hafði lækkað um 9%. Þetta misræmi kann að skýrast að hluta til af töf vegna flutnings– og afhendingartíma á eldsneyti til Íslands en líkt og sjá má á myndinni er áfram töluverður munur milli heimsmarkaðsverðs og innflutningsverðs með mánaðartímatöf. Það bendir til þess að fleiri þættir en þróun heimsmarkaðsverðs hafi áhrif á innflutningsverð á bensíni frá Noregi.

Heimild: Hagstofa Íslands, Seðlabanki Íslands og U.S. Energy Information Administration

Niðurstaða: Heimsmarkaðsverð er ekki nægjanlegt viðmið

Kjarninn í þessu er sá að heimsmarkaðsverð við New York höfn er ekki fullkomið viðmið til að leggja mat á verðþróun bensíns á Íslandi. Þótt innflutningsverð á bensíni, sem hefur bein áhrif á verðmyndun innanlands, hreyfist oft í takt við heimsmarkaðsverð líkt og fjallað er um hér að framan er sambandið þar á milli misríkt og virðist hafa verið veikara árið 2025 en árin á undan. 

Sjá FRÉTT á vef SVÞ – Smelltu hér!