Aðalfundur stafræna hópsins þann 8. október
Aðalfundur hópsins Stafræn viðskipti á Íslandi, innan SVÞ, verður haldinn föstudaginn 8. október nk. kl. 8:30-10:30. Þátttökurétt hafa allir þeir sem starfa innan aðildarfyrirtækja SVÞ – Samtaka verslunar og þjónustu. Fyrirtækin þurfa að vera skuldlaus við samtökin. Skrifstofa SVÞ, fyrir hönd formanns hópsins, Eddu Blumenstein, boðar hér með til fundarins.
Dagskrá:
1. Skýrsla stjórnar
2. Umræður um skýrslu stjórnar
3. Kynning á Stafrænum hæfniklasa og European Digital Innovation Hub
4. Aðrar lagabreytingar
5. Kosning
6. Önnur mál
Fundurinn verður haldinn á Teams og munu skráðir þátttakendur fá aðgangsupplýsingar sendar eigi síðar en kl. 8:00 að morgni fundarins. ATHUGIÐ breytta staðsetningu frá því sem áður var auglýst.
ATH! Nauðsynlegt er að skrá sig hér fyrir neðan.
Eftirfarandi stjórnarsæti eru laus:
– Tveir meðstjórnendur til 2 ára
– Varamaður til eins árs
Eftirfarandi aðilar bjóða sig fram til stjórnar hópsins (vinsamlegast flettið glærunum)
Hlutverk hópsins er að:
– kortleggja tækifæri stafrænnar verslunar og þjónustu á Íslandi til að hámarka samkeppnishæfni á alþjóðlegum markaði.
– gæta hagsmuna innlendrar netverslunar og -þjónustu.
– þrýsta á að stjórnvöld styðji við bakið á stafrænni verslun og þjónustu.
– standa fyrir fræðslu um stafræna verslun og þjónustu.
– safna og miðla gögnum og þekkingu um stafræna verslun og þjónustu og þrýsta á stjórnvöld að safna slíkum upplýsingum þar sem við á/hægt er.
– fylgjast með hvaða breytingar eru í gangi í löndunum í kringum okkur og miðla til félagsmanna.
Mikið hefur verið unnið á sviði hópsins sl. ár og mikið gerst í umhverfinu. Mun sú vinna verða kynnt á fundinum m.t.t. nýstofnaðs Stafræns hæfniklasa ses og European Digital Innovation Hub. Því hvetjum við alla félagsmenn sem áhuga hafa á stafrænum málum sérstaklega til að mæta á fundinn.