Sérsniðið námskeið: Aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka

SVÞ og KPMG boða til sérsniðins námskeiðs fyrir vátryggingamiðlara, aðila sem færa bókhald og eða sinna bókhaldsþjónustu fyrir þriðja aðila.

Námskeiðið miðar að því að kynna fyrir félagsmönnum SVÞ hvaða kröfur lögin gera til framangreindra aðila en þeir falla með beinum hætti undir lög um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka nr. 140/2018.

Farið verður m.a. yfir:

  • Hverjar eru skyldur vátryggingamiðlara, bókara og bókhaldsstofa?
  • Hvað þarf til að marka sér stefnu og útbúa áhættumat á grundvelli laga um aðgerir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka?
  • Hverjar eru kröfur til vátryggingamiðlara, bókara og bókhaldsstofa er varða frystingu fjármuna og skráningu aðila á lista yfir þvingunaraðgerðir?
  • Hvernig er hægt að lágmarka áhættu sem getur skapast á vettvangi peningaþvættis?

 

Jafnframt mun KPMG leggja fram;

  • Drög að stefnu og áhættumati sem félagsmenn geta aðlagað að sínum rekstri.
  • Sniðmát þar sem tilgreint er hvað verklagsreglur þurfa að lágmarki að innihalda.

Félagsmönnum gefst færi á að leita til sérfræðinga KPMG í kjölfar fyrirlestra, vakni frekari spurningar eða álitamál.

Um fyrirlesarana:
Björg Anna Kristinsdóttir er lögfræðingur hjá KPMG og hefur sérhæft sig í aðgerðum gegn peningaþvætti og tengdum brotum og málaflokkum. Hún hefur mikla reynslu og þekkingu á málum er tengjast peningaþvætti og hefur komið að fjölmörgum verkefnum sem lúta að hlítni við lög og reglugerðir. Hún ber einnig ábyrgð á málaflokknum hjá KPMG.

Edda Bára Árnadóttir er lögfræðingur sem hefur starfað hjá KPMG frá 2018.  Hún hefur sérhæft sig í virðisaukaskatti en einnig verið mikið í störfum tengdum aðgerðum gegn peningaþvætti og tengdum brotum og málaflokkum.

Dagsetning: Miðvikudagurinn 15.desember 2021
Tími: 08:30 – 10:00
Staður: Hylur, Hús atvinnulífsins, Borgartúni 35, 105 Reykjavík

Fulltrúar bókhaldsstofa og vátrygginamiðlara eru hvattir til að mæta á staðinn en viðburðurinn verður einnig í boði í streymi.

ATHUGIÐ: Einungis í boði fyrir félagsfólk SVÞ

SKRÁNING NAUÐSYNLEG!

 

 

Dagsetning

15.desember, 2021

Tími

08:30 - 10:00
Hylur, Húsi atvinnulífsins

Staðsetning

Hylur, Húsi atvinnulífsins
Borgartún 35, 105 Reykjavík
Á vefnum

Staðsetning 2

Á vefnum
Þátttakendur fá senda vefslóð rétt fyrir viðburðinn