Breytt Suðurlandsbraut – böl eða blessun fyrir fyrirtækin?

Borgarlínan og Suðurlandsbraut

Hvað þýða fyrirhugaðar breytingar fyrir verslun og þjónustu?

Félag atvinnurekenda og Samtök verslunar og þjónustu boða stjórnendur fyrirtækja við Suðurlandsbraut og í Múlahverfi til opins fundar um fyrirhugaðar breytingar á Suðurlandsbraut í tengslum við lagningu Borgarlínu.

Á svæðinu starfa á annað þúsund fyrirtækja með um 5.500 starfsmenn. Fyrirhugaðar framkvæmdir og skipulagsbreytingar geta haft veruleg áhrif á umferð, aðgengi og rekstrarskilyrði verslunar og þjónustu í hverfinu.

Kynning á áformum

Atli Björn Levy, forstöðumaður verkefnastofu Borgarlínu hjá Betri samgöngum, kynnir tillögur að breytingum sem nú eru til umsagnar í skipulagsgátt Reykjavíkur til 12. mars næstkomandi.

Sjónarmið atvinnulífsins

Hákon Steinsson, framkvæmdastjóri Lyfjavers, kynnir helstu áhyggjur, spurningar og sjónarmið fyrirtækja í hverfinu um áhrif breytinganna á starfsemi og aðgengi.

Umræður og fyrirspurnir

Að loknum framsöguerindum verða opnar umræður og fyrirspurnir.

Fundarstjórn annast Benedikt S. Benediktsson, framkvæmdastjóri SVÞ, og Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri FA.

Boðið verður uppá léttar veitingar.

Fundurinn er öllum opinn, skráning nauðsynleg. 

  • 00

    dagar

  • 00

    klukkustundir

  • 00

    mínútur

  • 00

    sekúndur

Bóka viðburð

Laus 96
Uppselt.

Dagsetning

6.mars, 2026

Tími

08:30 - 10:00
SKRÁ