Fræðslufundur um CBAM – Hvað þurfa fyrirtæki að vita?

Mánudaginn 23. nóvember 2026 kl. 11:00 standa Samtök verslunar og þjónustu (SVÞ) og Samtök iðnaðarins (SI) fyrir fræðslufundi um CBAM í Húsi atvinnulífsins, Borgartúni 35, í salnum Hyl.

CBAM (Carbon Border Adjustment Mechanism) er kolefnisjöfnunarkerfi Evrópusambandsins sem felur í sér nýjar kröfur til fyrirtækja sem flytja inn tilteknar vörur frá löndum utan ESB. Kerfið tekur meðal annars til innflutnings á áli, stáli, járni, sementi, áburði og vetni og hefur það að markmiði að jafna kolefniskostnað innfluttra vara og vara sem framleiddar eru innan ESB.

Fundurinn er sérstaklega ætlaður fyrirtækjum sem flytja inn vörur sem falla undir CBAM, svo og öðrum fyrirtækjum sem vilja kynna sér áhrif kerfisins á starfsemi sína og þær skyldur sem því kunna að fylgja.

Á fundinum munu sérfræðingar Umhverfis- og orkustofnunar, þau Heiðbjört Arney Höskuldsdóttir og Eysteinn Hrafnkelsson, fara yfir helstu kröfur CBAM og hvernig fyrirtæki geta undirbúið sig. Meðal annars verður fjallað um upplýsingagjöf og umsóknarferli sem fyrirtæki þurfa að huga að, auk mögulegra framtíðarskyldna, svo sem kaupa á CBAM-heimildum og skil á þeim.

Fundurinn verður hagnýtur og gefst þátttakendum tækifæri til að bera upp spurningar og ræða við sérfræðinga Umhverfis- og orkustofnunar.

Boðið verður upp á beint streymi frá fundinum og hann verður jafnframt tekinn upp og aðgengilegur félagsfólki SVÞ á innri vef samtakanna.
Við hvetjum þó félagsfólk SVÞ og SI sérstaklega til að mæta á staðinn, þar sem gefst gott tækifæri til ítarlegra samtals við sérfræðingana og til að fá svör við spurningum sem snúa að starfsemi einstakra fyrirtækja.

Skráning nauðsynleg.

  • 00

    dagar

  • 00

    klukkustundir

  • 00

    mínútur

  • 00

    sekúndur

Bóka viðburð

Form/ticket icon táknmynd
Frítt

1 miði valinn.

Uppselt.
Dagsetning
23.nóvember, 2026
Tími
11:00 - 12:00
Staðsetning
Hylur, Húsi atvinnulífsins
Hylur, Húsi atvinnulífsins
Borgartún 35, 105 Reykjavík
SKRÁ