Fyrirtækjaheimsókn SVÞ | JÁ.is
Hvað eru fyrirtækin innan SVÞ að gera í stafrænni þróun?
Fimmtudaginn 15.september 2022 býður JÁ.is félagsfólki SVÞ í heimsókn uppá Lyngháls 4, 110 Reykjavik (5.hæð).
Dagný Laxdal, sviðsstjóri viðskiptalausnasviðs JÁ og hennar teymi ætla að segja okkur frá vegferð þeirra í umbreytingunni yfir í stafræna lausnir. Hverjar voru áskoranirnar og hvernig þau fóru að því að yfirstíga þær?
Léttar og ljúfar veitingar í boði. Gullið tækifæri til að efla tengslanetið og kynnast einu af fyrirtækjum Samtaka verslunar og þjónustu!
Vertu með!
SKRÁNING NAUÐSYNLEG!