Menntadagur atvinnulífsins 2024

Menntadagur atvinnulífsins 2024

Menntadagur atvinnulífsins fer fram í Norðurljósasal Hörpu 14.febrúar 2024.

Göngum í takt
Er menntakerfið að halda í við þarfir atvinnulífsins?

Menntadagur atvinnulífsins er árlegur viðburður þar sem menntamál eru í brennidepli.
Fundurinn er haldinn í Hörpu miðvikudaginn 14. febrúar nk. kl. 09:00 – 10:30. Yfirskrift menntadagsins í ár er Göngum í takt: Er menntakerfið að halda í við þarfir atvinnulífsins?

Á fundinum kynnum við niðurstöður úr könnun Gallup á eftirspurn eftir vinnuafli þvert á atvinnugreinar í því augnamiði að skilgreina nauðsynlegar aðgerðir svo vinnuaflsskortur hamli ekki vexti í atvinnulífinu. Rödd atvinnulífsins fær að heyrast sem fyrr og ráðherrar málaflokksins mæta í umræður þar sem menntakerfið er krufið með tilliti til færniþarfar á vinnumarkaði.

Þá eru hin árlegu menntaverðlaun atvinnulífsins veitt í tveimur flokkum af Forseta Íslands, Guðna Th. Jóhannessyni.

Menntadagur atvinnulífsins er samstarfsverkefni SVÞ – Samtaka verslunar og þjónustu, Samorku, Samtaka ferðaþjónustunnar, Samtaka fjármálafyrirtækja, Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, Samtaka iðnaðarins og Samtaka atvinnulífsins.

Opið er fyrir skráningar á daginn hér: SJÁ HÉR! 

Dagsetning

14.febrúar, 2024

Tími

09:00 - 10:30

Frekari upplýsingar

SKRÁNING
Harpa

Staðsetning

Harpa
Reykjavík
SKRÁNING